151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

utanríkisviðskiptastefna Íslands, munnleg skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. - Ein umræða.

[14:49]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætt yfirlit. Nú er þessi skýrsla unnin af utanríkisþjónustunni og mikilvægt að þakka því góða fólki sem hefur komið að henni og öllum þeim ágætu málum sem hæstv. ráðherra taldi hér upp í fyrstu persónu. Á bak við alla þá vinnu er fjölmargt fólk.

Mig langar í fyrsta lagi að nefna að það er rétt sem hefur komið fram hjá hæstv. ráðherra, kannski ekki hér í dag en oft áður, um Evrópusambandið sem tollabandalag. Evrópusambandið er fyrst og fremst tollabandalag. Þá fer maður líka að hugsa um EES sem við erum í, hvers konar bandalag er það?

Síðan langar mig að nefna að Evrópusambandið er á ákveðnu hnignunarskeiði eins og kom fram hjá Jean-Claude Juncker í ræðu sem hann flutti í Madríd 2015. Þar fór hann yfir það að það væri mjög mikil hætta fyrir Evrópusambandið að festast í þessari niðursveiflu.

Mig langar líka, herra forseti, að nefna að í Noregi heyrast æ sterkari raddir um að velta þurfi því upp hvort hagstæðara sé fyrir Noreg að fara í tvíhliða samskipti við Evrópusambandið frekar en EES, og verður forvitnilegt að fylgjast með því. Mig langar að spyrja ráðherra hvort ekki sé örugglega verið að fylgjast með þeirri þróun í ráðuneytinu.

Í fjórða lagi langar mig að benda á að í grein í Kjarnanum fer Erna Bjarnadóttir yfir það að í umfjöllun í skýrslunni vanti um 20 samninga sem gerðir eru samhliða fríverslunarsamningunum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig á því standi að þá samninga vantar í skýrsluna og um leið hvort þeir samningar hafi einhver sérstök áhrif á niðurstöðu tollamála okkar svo að dæmi sé tekið, hvort ekki þurfi að bæta þeim inn í skýrsluna og endurskoða hana út frá því.

Herra forseti. Það er margt gott í þessari skýrslu, þessu yfirliti. Þetta er yfirlit yfir það sem við höfum verið að gera. Þar vantar, finnst mér, að horfa meira til framtíðar. Þar er talað um nýmarkaðsríkin, talað um Asíu, talað um Afríku, talað um Suður-Ameríku og gott að heyra að Mercosur-samningurinn sé að ganga upp. Við fórum til Brasilíu 2014 og hittum utanríkisráðherra og landbúnaðarráðherra landsins og ýttum aðeins við þessu á þeim tíma. Það var ágætisferð hjá okkur í utanríkisráðuneytinu. Hér er talað um að styrkja viðveru viðskiptafulltrúa í Kaupmannahöfn, London og París og ég efast ekki um að þörf sé á því. En ég velti því fyrir mér ef það er þannig, sem kemur reyndar líka fram í skýrslunni, að Evrópa sé að dragast aftur úr og vöxturinn sé annars staðar, hvort ekki þurfi þá líka — ég ætla að segja „líka“ af því að ég er talsmaður þess að utanríkisþjónustan vaxi frekar en hitt — að auka viðveru eða fjölga viðskiptafulltrúum og þjónustufulltrúum okkar í þessum nýmarkaðsríkjum. Við getum þess vegna hugsanlega fengið inni hjá vinum okkar á Norðurlöndunum með húsnæði ef á þarf að halda.

Mig langar að lokum að spyrja aðeins út í TiSA-viðræðurnar, örstutt, en á þær er minnst á bls. 28, held ég, hvort hæstv. ráðherra sé kunnugt um að þær eigi að fara aftur af stað eftir stjórnarskiptin í Bandaríkjunum og hver afstaða Íslands verði þá í þeim viðræðum. Það er margt fleira sem mig langar að ræða, herra forseti, en fleiri þurfa að komast að.