151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

utanríkisviðskiptastefna Íslands, munnleg skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. - Ein umræða.

[14:56]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka kærlega fyrir þá skýrslu sem hér liggur fyrir. Hún er í mínum huga merkilegt plagg og hafsjór af fróðleik, ekki síst fyrir þá sem hafa barist fyrir auknu frelsi í utanríkisviðskiptum. Hún leiðir í ljós að utanríkisviðskiptastefna Íslendinga er að skila árangri. Við erum að verða opnara land en nokkru sinni áður og við erum í raun að verða opnara land en flest önnur Evrópuríki, þó að sumir vilji síðan fara inn í einhver þau bandalög sem þar eru. En látum það liggja á milli hluta. Látum það liggja á milli hluta að í ljós kemur að 90% af tollnúmerum eru hér án tolla. Látum það liggja á milli hluta að aðeins 27% af tollnúmerum eru án tolla í Evrópusambandinu. Það er eitthvað sem menn ættu hins vegar að hafa í huga þegar þeir boða að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Þessi skýrsla svarar spurningum með skýrum hætti hvað það varðar.

Það er líka merkilegt að átta sig á því hvað við höfum náð langt og gert marga góða hluti þegar kemur að fríverslunarsamningum við aðrar þjóðir. Þar hafa allir flokkar, eða a.m.k. flestir, komið að verki. Það fríverslunarnet sem við erum hluti af í gegnum EFTA hefur skilað okkur þeim árangri að frá 2006–2019 jukust viðskipti við þennan 870 milljarða markað um 87% og mikilvægi þessara landa í viðskiptum okkar hefur aukist úr 9% í 12% á sama tíma og mikilvægi Evrópusambandsins hefur verið að minnka. Tækifærin í framtíðinni liggja einmitt í fleiri og öflugri viðskiptasamningum, fríverslunarsamningum, af þessu tagi. Þar liggja vaxtartækifærin okkar, ekki síst í Asíu og Eyjaálfu. (Forseti hringir.) Ég vil þakka utanríkisráðherra kærlega fyrir þessa skýrslu.