151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

utanríkisviðskiptastefna Íslands, munnleg skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. - Ein umræða.

[15:26]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða utanríkisviðskiptastefnu Íslands. Áfram gakk! stendur á ritinu. Ég veit ekki hvort myndin framan á því á að tákna eitthvað. Þar er einstaklingur á labbi og það er ekkert nema sikksakk út í auðnina. Ég ætla að vona að það sé ekki dæmi um að Ísland sé á leiðinni í tómar ógöngur. Ég held samt ekki. Ég held að ég verði bara að byrja á því í þessari umræðu að hæla hæstv. utanríkisráðherra fyrir það sem kom fram að væri niðurstaða hans í sambandi við ráðuneytið, að þrátt fyrir að framlög til varnarmála hefðu verið aukin um 25% og 53% í þróunarsamvinnu hefðu útgjöld ráðuneytisins dregist saman um 2% og sendiráðum verið fækkað um fjögur. Vel gert.

Ég vona að þetta sé bara fyrsta skrefið í því að hæstv. ráðherra taki almennilega til og spari en sjái á sama tíma til þess að utanríkismálin séu í góðum höndum og virki. Ég veit ekki hvort þessi Covid-faraldur hafi bein áhrif á það hvernig utanríkismálum verður háttað en ég held að það hljóti að vera hægt að læra helling af honum að því leyti að einfalda hlutina, spara ferðalög og tíma og gera allt skilvirkara. Utanríkisráðuneytið er eiginlega eina ráðuneytið sem er virkilega að draga saman og á mjög flottan hátt. Því miður er útþenslan í kerfinu enn gífurlega mikil hjá öðrum ráðuneytum. Vonandi taka þau utanríkisráðuneytið sér til fyrirmyndar og taka aðeins til.

Annað sem við þurfum að ræða og er svolítið á dagskránni núna er fordæmalaus dómur yfir Navalní í Rússlandi. Það er ólíkt að standa í mótmælum í Rússlandi eða hér fyrir utan Alþingi. Maður var a.m.k. ekki laminn niður og handjárnaður heldur fékk maður að mótmæla í friði. Því miður eru þær myndir sem sjást frá Rússlandi skelfilegar. Það er eiginlega stórfurðulegt að það skuli vera hægt fangelsa mann fyrir að rjúfa skilorð þegar hann var gjörsamlega meðvitundarlaus. Ég skil ekki hvernig í ósköpunum meðvitundarlaus maður á að sjá til þess að tilkynna sig þannig að hann rjúfi ekki skilorð. En þetta sýnir líklega bara hver munurinn er á lýðræðisríki og því sem eiginlega má kalla einræði. Stjórnarfarið sem þarna er virkar því miður hreinlega ekki. Og það veldur manni líka áhyggjum þegar maður sér vinnubrögðin og hvernig þeir lemja á mótmælendunum. Það er farið að nálgast 10.000 manns sem er búið að fangelsa án dóms og laga og ég óttast að þetta sé bara byrjunin.

Síðan er annað sem ógnar — nú er tíminn að verða búinn — en það er Kína sem er núna farið hnykla vöðvana gagnvart Taívan og sýna þeim yfirgang, sem er kannski ekki nýtt en þeir eru byrjaðir aftur. Síðan er aðaláhyggjuefnið líka öll þeirra svik í Hong Kong. Þar er verið að svíkja tiltölulega nýgerða samninga sem þeir gerðu við Breta á sínum tíma. Þar birtist líka þetta skefjalausa ofbeldi gagnvart þeim sem vilja réttlæti og eru að mótmæla. Það er auðvitað grundvöllur lýðræðisins að fólk fái að koma sínum skoðunum að og mótmæla. En ég held að hæstv. utanríkisráðherra sé á réttri leið í sínum málum og ég hef þetta ekki lengra.