utanríkisviðskiptastefna Íslands, munnleg skýrsla utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að óska hæstv. utanríkisráðherra til hamingju með mikilvæga skýrslu og gagnlega. Utanríkisviðskipti eru aflgjafi hagsældar og velmegunar. Það þekkjum við Íslendingar allt frá landnámi. Aldrei hefur okkur farnast betur á öllum öldum Íslandsbyggðar en þegar viðskiptin voru frjáls og aldrei verr en þegar við vorum undir einokunarviðskiptaháttum. Ef við lítum til liðinnar aldar þá er okkar saga í efnahagslegu tilliti sú að við brutumst úr fátækt til bjargálna, síðar ríkidæmis og auðlegðar, fyrir tilstilli utanríkisviðskipta vegna þess að við áttum aðgang að mörkuðum fyrir framleiðsluvöru okkar. Þess vegna er mjög mikilvægt að við gætum mjög vel að þessum málum eins og hæstv. utanríkisráðherra er að gera með þessari skýrslu og gagnlegt að fá yfirlit yfir þessa samninga alla saman, fríverslunarsamninga og hið alþjóðlega viðskiptakerfi sem þjóðir hafa komið sér upp.
Á bls. 17 er merkilegt línurit sem má leggja út af á ýmsa vegu. Hv. þm. Óli Björn Kárason lagði mjög skynsamlega út af því og sagði að það drægi náttúrlega fram að við værum með opnustu ríkjum í viðskiptalegu tilliti. Það er alveg rétt en því má kannski líka bæta við að lönd sem við viljum gjarnan bera okkur saman við, eins og Danmörk, Svíþjóð og baltnesku ríkin, mælast ofar á þeim kvarða og það undirstrikar bara í mínum huga hvað við eigum mikil tækifæri á þessum vettvangi.
Herra forseti. Ég er eins og fleiri hv. ræðumenn hérna mjög upptekinn af þeim tíðindum sem urðu hér í september 2019, fyrst heimsókn Pence varaforseta Bandaríkjanna þar sem hæstv. ráðherra orðaði fríverslunarsamning og svo fréttum síðar í sama mánuði um að ríkisstjórnin hefði áhuga á gerð slíks samnings. (Forseti hringir.) Ég vil nota tækifærið og árétta og undirstrika samstöðu okkar Miðflokksmanna með hæstv. ráðherra í allri hans viðleitni til þess að efla og bæta samskipti okkar við Bandaríkin í viðskiptalegu tilliti sem og öðru.