sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Hér er verið að skjóta styrkari lagastoð undir sóttvarnaráðstafanir sem verið er að beita í þeim faraldri sem nú stendur yfir. Hér er verið að tryggja betur réttindi borgaranna, þar með talið að skýra mögulegar kæruleiðir en ekki síður að skýra með afgerandi hætti af hálfu löggjafans þau hugtök og þær ráðstafanir sem verið er að beita. Það er afar mikilvægt skref sem þingið er að stíga hér og ég vil þakka sérstaklega framsögumanni nefndarinnar og málsins. Ég vil þakka allri velferðarnefnd. Ég vil þakka ráðuneytinu fyrir að bregðast hratt og faglega við þegar ljóst var að við þyrftum að hafa hraðar hendur í haust sem leið. Heildarendurskoðun á sóttvarnalögum stendur fyrir dyrum og er mikilvæg í ljósi þeirrar reynslu sem við komum til með að vera með í höndunum þegar þessi faraldur er að baki. Það er afar mikilvægt hvað Alþingi hefur sýnt mikla samstöðu, yfirvegun og málefnalega úrvinnslu í þessu flókna máli.