151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

Vestnorræna ráðið 2020.

492. mál
[17:12]
Horfa

Flm. (Guðjón S. Brjánsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mun hér gera grein fyrir starfsemi Vestnorræna ráðsins fyrir árið 2020 og stikla á stóru. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að árið 2020 skipar sérstakan sess í sögunni og það hefur haft áhrif á starf á Alþingi og tengsl þingmanna og Alþingis við heiminn allan, alþjóðastarfið. Á þessu ári hefur verið leitað afbrigða í þeim efnum en við höfum aldeilis ekki verið sambandslaus. Allgóðu starfi hefur verið uppi haldið þrátt fyrir þessar aðstæður.

Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur, eins og kunnugt er, þingmanna frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Þegar allt leikur í lyndi í hefðbundnu ári þá hittast meðlimir ráðsins tvisvar á hverju almanaksári, annars vegar á þemaráðstefnu að vetri og hins vegar á ársfundi að hausti. Að þessu sinni og í samræmi við framansagt fór meginþorri starfsins fram á fjarfundum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins tók virkan þátt í starfinu á árinu og vann að framgangi vestnorrænna mála á Alþingi. Í júní samþykkti Alþingi tvær þingsályktanir byggðar á ályktunum ársfundar Vestnorræna ráðsins árið 2019. Þær fjölluðu annars vegar um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir ungmenni milli vestnorrænu landanna og hins vegar um stofnun vestnorrænna umhverfisverðlauna hafsins. Þess er að vænta að báðar þessar tillögur skili einhverjum árangri en við eigum eftir að sjá það enn. Hin umhverfisvænu verðlaun hafsins eru áhugavert efni.

Sá sem hér stendur, formaður Íslandsdeildar, gegndi starfi formanns Vestnorræna ráðsins fram að ársfundi ráðsins í nóvember og tók fyrir þess hönd þátt í fundum á vettvangi Norðurskautsráðs og þingmannanefndar um norðurskautsmál.

Vestnorrænu tungumálin voru viðfangsefni þemaráðstefnu ársins, sem haldin var í Þórshöfn í Færeyjum í janúar. Rætt var um áskoranir sem við blasa svo standa megi vörð um og vernda megi tungumálin á tímum stafrænnar byltingar og alþjóðavæðingar. Á fundinum kom fram mikill áhugi ráðstefnugesta varðandi þetta málefni og fulltrúar þessara landa gera sér grein fyrir því álagi sem hvílir á tungumálunum og að þessi lönd megi hafa sig öll við til að viðhalda og vernda tungumálin. Þessir fulltrúar ítrekuðu mikilvægi norræns samstarfs í þessu sambandi til að takast á við þessar áskoranir, t.d. við þróun máltækni og kynningu á bókmenntum erlendis. Varðandi máltæknina þá höfum við Íslendingar sannast sagna svolítið að gefa, því að við höfum aflað okkur þekkingar og það er komin til tækni sem væri ánægjulegt og gagnlegt að Íslendingar gætu miðlað til granna sinna.

Samhliða þessari þemaráðstefnu ræddu meðlimir ráðsins hvernig hægt væri að gera ályktanir ráðsins markvissari og árangursríkari. Sú sérstaða hvílir nú í ályktunum Vestnorræna ráðsins að þær verða að þingsályktunartillögum sem færðar eru þingunum í öllum þremur löndunum. Í kjölfar þessarar umræðu var málið tekið fyrir á vettvangi skrifstofu ráðsins og í forsætisnefnd og á ársfundi var samþykkt innri ályktun um verklag við ályktanagerð. Samkvæmt ályktuninni er mælst til þess að samráð verði haft milli landsdeilda og við sérfræðinga um efni ályktana í aðdraganda ársfundar. Einnig er mælst til þess að ályktanir verði afskrifaðar eftir þrjú ár frá samþykkt þeirra. Um þetta er það að segja að mikilvægt er að ályktanir sem fara fyrir öll þjóðþingin séu burðugar að innihaldi, séu þýðingarmiklar og fái umfjöllun í hverju landanna um sig og fái eftirfylgd. Síðan var fjallað um það og samþykkt raunar innan ráðsins að ályktanir verði afskrifaðar eftir þrjú ár frá því að þær eru samþykktar. Hvað þýðir þetta? Jú, þá er litið svo á að annaðhvort hafi efni þessara ályktana tekið gildi og þjónað tilgangi sínum eða hugsanlega að þær eigi ekki lengur við vegna breyttra aðstæðna. Þetta er til þess hugsað að ályktanir dagi ekki uppi og fái endurtekna umfjöllun þinganna og ráðuneyta þar sem borið hefur á því að litlar breytingar verði frá einu ári til annars hvað varðar umsagnir ráðuneyta.

Herra forseti. Heimsfaraldur kórónuveiru var tilefni yfirlýsingar forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins í mars, þar sem ríkisstjórnir landanna þriggja voru hvattar til að vinna saman gegn útbreiðslu veirunnar og samræma aðgerðir sínar.

Frá marsmánuði var öll starfsemi Vestnorræna ráðsins í gegnum fjarfundabúnað og unnu starfsmenn skrifstofu ráðsins að mestu að heiman. Ráðið átti einnig fjarfundi með samstarfsaðilum; Norðurskautsráði, þingmannanefnd um norðurskautsmál og Evrópuþinginu. Ég notaði tækifæri sem gáfust á þessum fundum og með samstarfsráðherrum vestnorrænu ríkjanna að fjalla m.a. um þá stöðu sem ríkir varðandi virkni sérhæfðra leiðsögukerfa í vestnorrænni landhelgi. Leiðréttingakerfi Evrópusambandsins EGNOS, og hið bandaríska WAAS, sem auka nákvæmni staðsetningarupplýsinga frá því sem hægt er að fá í gegnum okkar hefðbunda GPS-kerfi, væru ekki aðgengileg á öllu Íslandi eða á Grænlandi. Ríkisstjórnir landanna gætu leyst vandamálið í samvinnu við bandaríska og evrópska aðila. Við í Vestnorræna ráðinu hvöttum eindregið til þess að þetta yrði að veruleika. Ég þekki til þess að þetta er orðið forgangsatriði meðal stjórnvalda á Íslandi og í væntanlegu samstarfi við Grænlendinga. Samstarf landanna á þessu sviði er dýrmætt og gæti gagnast vel til að auka öryggi í lofti og á sjó og gera samgöngur jafnvel samfelldari. Það myndi gagnast innan lands á Íslandi. Það er möguleiki til að nýta heldur lakari skilyrði til lendinga innan lands. Mér dettur í hug að nefna Vestmannaeyjar og Ísafjörð í því sambandi þótt öllu séu nú takmörk sett.

Virðulegur forseti. Samstarf Alþingis og Vestnorræna ráðsins hefur verið langt og farsælt. Í lok apríl var endurnýjaður samningur milli þessara aðila og staðfestur með undirritun forseta Alþingis og formanns Vestnorræna ráðsins. Samningurinn kemur í stað tímabundins samnings sem raunar rann út seint á síðustu öld en litið var svo á að hann væri enn í gildi. Samningurinn skjalfestir stöðu skrifstofu Vestnorræna ráðsins gagnvart Alþingi. Alþingi útvegar skrifstofunni starfsaðstöðu og tekur m.a. að sér að færa bókhald Vestnorræna ráðsins ásamt því að færa launabókhald þess og greiða reikninga fyrir hönd þess. Alþingi skuldbindur sig einnig til að varðveita gögn ráðsins samkvæmt samningnum. Undirritun samningsins vitnar um velvild og staðfestir ásetning forseta þingsins um að standa áfram vörð um þetta mikilvæga samstarf þjóðanna þriggja sem felur í sér að það mun einungis vaxa að mikilvægi.

Vestnorræni dagurinn sem er 23. september var haldinn hátíðlegur með málstofum í Norræna húsinu sem voru sendar á netinu. Auk þess voru fánar dregnir að hún við Alþingishúsið, eins og kannski einhverjir muna.

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins eru veitt annað hvert ár og verða veitt næst á árinu 2022. Bergrún Íris Sævarsdóttir hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins árið 2020 fyrir bókina Langelstur að eilífu. Verðlaunin voru afhent í Færeyjum við fámenna athöfn þar sem tilnefndir höfundar tengdust með fjarfundabúnaði.

Þá tók Vestnorræna ráðið þátt í skipulagningu á röð rafrænna viðburða undir nafninu Icelandic Arctic Talks haustið 2020 ásamt rannsakendum og stofnunum á vettvangi norðurslóðamála. Þar tók ég sem formaður ráðsins þátt í málstofu um ungt fólk á norðurslóðum en ungt fólk var forgangsverkefni Vestnorræna ráðsins á árinu, ungt fólk, framtíð þess, líðan og horfur á norðurslóðum.

Forsætisnefnd fundaði reglulega með fjarfundabúnaði eins og fyrr er getið og rætt var um að aukin hagnýting á þessu fundarformi gæti gert forsætisnefnd í þessum þremur nágrannaríkjum kleift að eiga enn nánara samstarf í framtíðinni. Þó að við séum grannar þá er dálítið umhendis oft á tíðum að ferðast til þessara staða. Það er kannski eitt af þeim áskorunarefnum sem við glímum við í náinni framtíð en það horfir til bjartari tíðar með betri samgöngumöguleikum, t.d. á Grænlandi með nýjum flugvöllum.

Á fundum okkar á árinu 2020 var auðvitað fastur liður að fara yfir stöðuna varðandi útbreiðslu kórónuveirunnar í löndunum þremur og fara yfir þau mál sem hæst bar hverju sinni. Vegna einangrunar sinnar áttu vestnorræn stjórnvöld auðveldara með að koma í veg fyrir að smit bærust inn í löndin yfir landamærin en mörg önnur Evrópulönd og hafa algjöra sérstöðu hvað þetta varðar. Sumarið í fyrra, 2020, var staðan orðin svo góð að meðal ráðsmeðlima ríkti bjartsýni um að hægt yrði að halda ársfund á Íslandi í september, með vestnorrænum fundi, gangsetja alþjóðastarfið að nýju með varfærnum hætti með grönnum okkar. Það var þægileg tilhugsun að geta horft fram til þess. En eftir að smitum fjölgað í lok sumars var hins vegar ákveðið að fresta ársfundinum fram í nóvember og að lokum að halda hann með fjarfundabúnaði. Það var í fyrsta sinn sem það gerðist í sögu ráðsins.

Herra forseti. Vestnorræna ráðið samþykkti þrjár ályktanir á ársfundi sínum árið 2020. Í fyrsta lagi um aukið samstarf vestnorrænna samstarfsráðherra Norðurlanda og í öðru lagi um aukið samstarf vestnorrænna ráðherra sem fara með málefni norðurslóða og í þriðja lagi um stuðning vestnorrænu landanna við aukaaðild Færeyja og Grænlands að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

Virðulegur forseti. Ég hef nú stuttlega farið yfir starfsemi Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins en vísa að öðru leyti til ársskýrslunnar í heild sem liggur frammi hér í þinginu og er aðgengileg sömuleiðis á vef Alþingis.

Að lokum vil ég bara undirstrika þetta: Gangverk eins og Vestnorræna ráðið, samstarf þriggja landa, höktir og hikstar ef ekki væri sá góði kostur að geta hallað sér að afbragðsstarfsfólki sem vinnur verkefni sín af fágun og fagmennsku. Þeim þakka ég af heilum hug fyrir gott samstarf. Á þessum tímamótum þegar vel er liðið á tímabil kjörinna fulltrúa sem sitja í Vestnorræna ráðinu, þeir upplifa óvissutíma eins og gengur og margra bíða ný ævintýr, óska ég ráðinu velfarnaðar í mikilvægum og vaxandi verkefnum í heimi sem breytist hratt, ekki síst á norðurslóðum.