151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

Vestnorræna ráðið 2020.

492. mál
[17:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina yfir vestnorræna samstarfið og Vestnorræna ráðið. Hv. þingmaður kemur inn á eitt af mínum stóru áhugamálum hér á þinginu sem ég hef talað um nánast frá fyrsta degi hér og það er gervihnattaleiðsaga með EGNOS og mikilvægi þess fyrir okkar heimssvæði, fyrir Ísland, og sérstaklega Grænland, held ég, til framtíðar ef tekst að skapa réttar forsendur. Það er ánægjulegt að heyra að áhuginn er greinilega að vakna. Við finnum líka hér í þinginu og í stjórnsýslunni á Íslandi að málið er að breytast og hefur breyst töluvert í umræðunni á fjórum árum. EGNOS gæti haft mikil áhrif á vestari hluta Íslands í flugi, siglingum, vísinda- og tæknistörfum og á svo mörgum öðrum sviðum. Við erum á milli EGNOS-kerfisins, evrópska kerfisins sem heitir Galileo og síðan WAAS-kerfisins sem er í Ameríku. Ég held að það sé einstakt tækifæri til að bæta raunverulega öll samgöngumál á Grænlandi í þessu ferli með því að nýta gervihnattaleiðsöguna, hvort sem það yrði EGNOS eða WAAS sem myndi ná hérna yfir. Á Íslandi myndi ég klárlega vilja sjá bæði kerfi ná yfir landið. Í Færeyjum hefur orðið gjörbreyting í flugi um Vogaflugvöll. Færeyska flugfélagið var meðal fyrstu flugfélaga í heimi sem byrjuðu með þetta. Áður var 90% nýting í Vogum en í dag er 99% nýting á flugvellinum og þetta hefur gjörbreytt öllu. Ég myndi kannski vilja fá að heyra frá hv. þingmanni hvernig við sjáum næstu skref innan Vestnorræna ráðsins í tengslum við EGNOS og gervihnattaleiðsögu.