151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

norðurskautsmál 2020.

498. mál
[18:07]
Horfa

Frsm. ÍNSM (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Ég flyt hér skýrslu Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál fyrir árið 2020. Skýrslan er allmargar blaðsíður og það er útdráttur úr henni sem heitir „Inngangur“ og ég ætla, með leyfi herra forseta, að lesa upp úr honum hér svo að þingheimur fái nokkurn veginn mynd af því sem hefur gerst á árinu 2020.

Á vettvangi þingmannanefndar um norðurskautsmál bar á árinu 2020 hæst umræður um heimsfaraldur Covid-19 og viðbrögð aðildarríkjanna við honum, formennskuáætlun Íslands í Norðurskautsráðinu og baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Eftir að Covid-19 tók að breiðast út í aðildarríkjum þingmannanefndarinnar og ferðatakmarkanir voru settar á tók nefndin ákvörðun um að fundir færu fram rafrænt þar til ástandið batnaði. Þá var fyrirhugaðri þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem halda átti í september 2020 í Tromsö frestað til apríl 2021. Nefndarmenn deildu upplýsingum um áhrif heimsfaraldursins á þingstörfin og ræddu m.a. algjört hrun í ferðaþjónustu sem hefur haft alvarleg áhrif á efnahag norðurslóða. Þá hafi faraldurinn aukið möguleika þingmanna til þátttöku í fjarfundum og það sé jákvæð þróun sem halda mætti á lofti eftir að faraldurinn hefði gengið yfir. Enn fremur voru nefndarmenn sammála um að baráttan við heimsfaraldur hafi varpað ljósi á mikilvægi frekari samstöðu og alþjóðlegs samstarfs á norðurslóðum.

Formennskuáætlun Íslands í Norðurskautsráðinu var í brennidepli en Ísland tók við formennskunni til tveggja ára af Finnum í maí 2019. Áætlunin ber yfirskriftina Saman til sjálfbærni á norðurslóðum, sem vísar til þess að meginviðfangsefni ráðsins krefjast samvinnu yfir landamæri og er áminning um að starf ráðsins hefur frá upphafi snúist um að tryggja sjálfbæra þróun á svæðinu. Rússar taka við formennsku af Íslandi í maí 2021 en Norðurskautsráðið fagnar 25 ára afmæli það ár.

Nefndin lagði að venju ríka áherslu á umhverfismál og horfði sérstaklega til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Loftslagsbreytingar eru stærsta váin á norðurslóðum og ræddu fulltrúar þingmannanefndarinnar um það hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum þeirra, m.a. á samfélög á norðurslóðum og hitastig hafsvæðis, en loftslagsbreytingar eru tvöfalt hraðari á svæðinu en annars staðar í heiminum. Þá var lögð áhersla á mikilvægi Parísarsamkomulagsins og að Bandaríkin verði aftur aðili að samkomulaginu eftir að Joe Biden tæki við sem nýr forseti 20. janúar 2021.

Fulltrúar Íslandsdeildarinnar lögðu m.a. áherslu á jafnréttismál á norðurslóðum og mikilvægi þess að vísindasamfélagið deili enn frekar upplýsingum milli ríkja og sameini vísindarannsóknir. Af fleiri málum sem voru ofarlega á baugi hjá þingmannanefndinni má nefna málefni hafsvæða á norðurslóðum, menntamál og hvernig stuðla megi að áframhaldandi stöðugleika á svæðinu. Að auki fóru fram umræður um stefnur aðildarríkjanna og Evrópusambandsins í málefnum norðurslóða.

Lík ég þá þessum lestri. Mig langar að greina frá skipan Íslandsdeildarinnar. Aðalmenn Íslandsdeildar 2020 voru Ari Trausti Guðmundsson formaður, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Líneik Anna Sævarsdóttir varaformaður, úr Framsóknarflokki, og Björn Leví Gunnarsson, úr þingflokki Pírata. Varamenn voru Halla Signý Kristjánsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Smári McCarthy. Ritari Íslandsdeildar var Arna Gerður Bang eins og hefur verið mörg undanfarin ár. Ykkur til upplýsingar situr formaður fyrir hönd Íslandsdeildar í þingmannanefndinni en í forföllum hans situr varaformaður fundi nefndarinnar. Annað hvert ár sækir öll Íslandsdeildin ráðstefnu nefndarinnar. Hún er þar með haldin á tveggja ára fresti eins og fram kemur. Íslandsdeildin kemur saman sjálf eftir þörfum og þá gerir formaður grein fyrir starfi þingmannanefndarinnar og nefndarmenn ræða og fá jafnframt upplýsingar um starf Norðurskautsráðsins.

Íslandsdeildin, þ.e. við þrjú sem erum aðalmenn, hélt þrjá fundi á árinu 2020. Þingmannanefndin sjálf, þ.e. fulltrúar allra átta þjóðanna og Evrópuþingsins, hélt líka þrjá fundi á árinu og tók formaður Íslandsdeildar þátt í þeim öllum. Tveir af þremur fundum nefndarinnar fóru fram sem fjarfundir af völdum heimsfaraldurs Covid-19. Jafnframt sótti formaður norrænan aukafund nefndarinnar í Stokkhólmi 3.–4. mars. Um nánari lýsingu á þessu starfi vísast til ársskýrslunnar sem er bæði til á vef Alþingis og auðvitað sem prentað þingskjal.

Að þessu sögðu ætla ég ekki að fara nánar ofan í þá atburðarás sem liggur að baki nefndarstörfunum á þessu ári eða ráðstefnunni, ég vísa til skýrslunnar. En mig langar að greina frá því að næsti fundur formanna þingmannanefndarinnar, þ.e. þessara átta, á að vera í Washington 24. febrúar næstkomandi en verður auðvitað ekki þar heldur verður enn einn fjarfundurinn. Ráðstefnan með öllum nefndunum samankomnum, sú sem er haldin á tveggja ára fresti, átti að vera í Tromsö undir miðjan apríl en verður líka fjarfundur og skiptist niður á tvo daga. Þannig er nú veruleikinn í heimsfaraldrinum. Á vissan hátt hefur þetta gagnast við að halda fundina vegna þess að það hefur verið stundum ákveðið vandamál að ná fólki saman frá Síberíu og Grænlandi og þaðan sem allir þessir ólíku fulltrúar koma. En það má fullyrða að allir líta með tilhlökkun til þess tíma er menn geta hist í raunveruleikanum aftur.

Mig langar að tæpa á nokkrum lykilatriðum varðandi norðurslóðastarfið, nota hluta af fundartímanum í það í staðinn fyrir að lesa upp úr skýrslunni, og tæpa á atriðum sem ég held að skipti verulegu máli varðandi allt framhald þessa mikilvæga starfs.

Fyrst aðeins um spennuna. Við tölum mikið um lágspennu og það er sameiginlegt álit fulltrúa í þingmannanefndinni, allra þjóða í raun og veru og Evrópuþingsins enn fremur, að halda þurfi þessari lágu spennu, því lága spennustigi sem verið hefur. En það eru merki um annað. Rússar riðu á vaðið 2018 með því að sérstakur sendiherra Rússa, norðurslóðasendiherra, fór að ræða um og gagnrýna norðurslóðastefnu Breta og hernaðarstefnu þeirra, ef við getum orðað það þannig, á fundi í Múrmansk. Hann braut í blað með því að gera það. Það var ákveðið að svara því ekki á neinn máta heldur leiða það hjá sér. Svo var það aftur, þó að það hafi ekki verið á vegum þingmannanefndarinnar heldur Norðurskautsráðsins, að Pompeo, utanríkisráðherrann þáverandi, fór sömu leið og reyndar gekk miklu lengra en þessi sendiherra hafði nokkurn tímann gert. Þannig að orðræðan er aðeins farin að breytast og birtast með þessum hætti.

Þeir sem eru leikendur og gerendur í því að leggja fram ný og ný merki um frekar aukna spennu en hitt eru Bandaríkjamenn og NATO-ríkin annars vegar og svo Rússar hins vegar. Það birtist í því að verið er að byggja nýjar stöðvar í Rússlandi sem tengjast reyndar siglingum en ekki bara því heldur eru þær einnig raunverulegar herstöðvar og sumar býsna stórar. Heræfingar eru af hálfu þessara aðila á hafinu fyrir norðan Noreg og út á Atlantshafið. NATO svarar með því að auka sínar æfingar í Noregi og það er líka aukið samstarf milli Svíþjóðar og Finnlands og NATO. Þetta kalla ég svona ping-pong áhrif sem gera að verkum að menn skiptast á og jafnvel auka heldur við. Þetta er staðreynd sem menn hafa ekki viljað líkja við kalda stríðið á nokkurn máta og það er alveg hárrétt. En engu að síður eru merki um að þessar tvær ólíku blokkir, NATO-ríkin og svo Rússland, séu að hnykla vöðvana, við skulum bara orða það þannig. Inn í þetta blandast svo Kína sem gengur fram með öðru móti að sjálfsögðu, fyrst og fremst efnahagslega, er fyrst og fremst að auka sýnileika sinn á svæðinu. Það er hægt að vega og meta þetta á margan máta. Hversu alvarlegt er þetta og hverjir eru á undan hverjum? Hvort kemur á undan, hænan eða eggið? Fyrir mér, og ég hef fylgst með norðurslóðum í mjög langan tíma, er þetta hægt vaxandi spenna þótt hún sé langt í frá að vera komin á það stig að líkjast því sem við köllum kalda stríðið. Svo að spennan vex og við þurfum að mæta því. Það gerum við með því að taka upp viðræður um þessi mál, ekki á vettvangi Norðurskautsráðsins, ekki á vettvangi þingmannaráðstefnunnar, heldur á vettvangi sem jafnvel á eftir að finna. En það þarf að hefja viðræður og reyna að finna leiðir til þess að halda lágspennunni í öllu samstarfinu, sem hefur gengið vel, og reyna að útkljá þessi mál á öðrum vettvangi.

Auðlindamótsögnin sem ég fór með áðan, aukin vinnsla jarðefnaeldsneytis á norðurslóðum á einn bóginn og á hinn bóginn aukinn hlýnunarhraði, ef ég fæ að nota það orð. Þetta er ósamrýmanlegt. Það er óeining um þetta innan landanna og það er óeining á milli landanna. Tökum bara Noreg, það eru aðilar í Noregi sem vilja að Noregur hætti þessu. Svo eru aðilar í Noregi, sérstaklega í stjórnkerfinu og ráðandi flokkum, sem vilja endilega auka þátt Norðmanna í þessari vinnslu. Kanadamenn eru þar og Bandaríkjamenn voru á leiðinni í verulega vinnslu. Það breytist sennilega með núverandi stjórn. Litlu ríkin, sérstaklega Grænland, hafa í hyggju að fara þessa leið o.s.frv. Við þurfum að halda til haga þessari auðlindamótsögn, rétt eins og spennunni. Loftslagsógnin er þannig að hún vex en minnkar ekki. Og það sem meira er er að hraðinn eykst en minnkar ekki. Sífreri, jöklar og fleiri fyrirbæri í náttúrunni sýna það glögglega.

Svo er það fólkið. Það eru 4 milljónir íbúa, 10% eru frumbyggjar og í miklu af norðurslóðastarfinu hefur fólkið ekki gleymst en það hefur ekki haft sama vægi eða réttlátt vægi miðað við efnahagstækifærin. Svo er spurningin um stjórnun og yfirráð og annað slíkt. Ef það hefur verið farið út í vinnslu á ónumdum slóðum, inni á landi frumbyggja eða hvað það nú kann að vera, þá hefur skort á samráð við frumbyggja og jafnvel almennt séð við almenna íbúa þessa svæðis. Við þurfum að hafa fólkið með og setja það nær forgrunninum en við höfum verið að gera.

Vísindasamvinna er gríðarlega mikilvæg og hún er mikil en hún hefur ákveðinn halla sem felst í því að stór hópur, sem eru rússneskir vísindamenn, hefur lítinn aðgang, þó ekki væri nema vegna enskukunnáttu, að niðurstöðum vísindarannsókna utan Rússlands og öfugt. Við flest skiljum ekki rússnesku. Ég hef stundum sagt að það væri verulega mikið gagn að því að koma þó ekki væri nema niðurstöðum úr vísindarannsóknum yfir á fleiri tungumál, þess vegna frönsku, ensku, rússnesku, kínversku, þannig að vísindasamvinnan verði raunverulegri á þennan máta, ekki sjálfar rannsóknirnar heldur dreifing á upplýsingum og dreifing á niðurstöðum.

Svo vil ég nefna í framhjáhlaupi að það hefur oft komið fram sú viðbára í norðurslóðastarfinu að við þurfum meiri rannsóknir áður en við getum gert þetta eða hitt. Það er auðvitað heilmikið til í því. En mitt álit er að vísindarannsóknir hafa staðið það lengi og niðurstöðurnar úr þeim eru orðnar það miklar og ákveðnar að við höfum nægileg gögn í höndunum til að höndla bæði hratt og vel. Það er því engin „afsökun“ að draga lappirnar af því að nægar vísindarannsóknir hafi ekki verið stundaðar og nægar vísindalegar rannsóknir hafi ekki gefið einhlít svör við þessu eða hinu. En auðvitað má ávallt betur gera.

Í síðasta lagi vil ég nefna tengslin á milli þess sem ég er fulltrúi hér fyrir, sem er þingmannanefndin, þá erum við að tala um þjóðþingin í löndunum átta og Evrópuþingið annars vegar, og svo Norðurskautsráðið sjálft sem er framkvæmdarvaldið hins vegar. Þar á milli þarf að auka tengslin. Við í þingmannanefndinni leggjum fram álitsgerðir og þær ganga í gegnum ríkisstjórnir til Norðurskautsráðsins. En við höfum á tilfinningunni að ekki sé alltaf litið á þær jákvæðum augum og jafnvel ekki alltaf litið á þær í alvöru. Það sem við höfum gert hér, og er nýlunda, er að við fengum íslenska utanríkisráðuneytið til þess að taka ályktun í 37 liðum, sem var frá síðustu ráðstefnu sem var haldin í Inari 2018, og bregðast við öllum atriðunum. Það er að frumkvæði íslensku þingmannanefndarinnar sem fær ráðuneytið til að gera þetta. Við ætlum að draga niðurstöðurnar saman og kynna þær væntanlega á næsta fundi formanna þessara þingnefnda og vonum svo að íslenska forystan í Norðurskautsráðinu skili því til ráðsins. Þarna verður þá komin ein leið til að sjá hvernig þessi tengsl eru á milli þinganna annars vegar og löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins hins vegar. Þau tengsl þarf að styrkja með öllum ráðum.

Aftur að Norðurskautsráðinu. Eins og Ísland hefur sagt í sinni formennskutíð þarf að styrkja það sjálft og ég tel enn fremur að það væri mikið gagn að því að tengsl þinga og þingmanna þessara ólíku þjóða væru meiri. Það eru mjög lítil tengsl milli íslenskra og rússneskra þingmanna umfram þingmannaráðstefnuna. Þar ættum við að bæta í. Það hafa verið tiltölulega lítil tengsl milli íslenskra og bandarískra þingmanna þannig að þau þyrftum við að auka líka. Það er helst á vettvangi Norðurlanda þar sem þessi tengsl hafa verið góð. Kanada, Bandaríkin og Rússland, á öllum þessum stöðum þyrftum við að auka tengslin og ég tala nú ekki um við þingmenn Evrópuþingsins, sem er rétt að byrja því að þar var verið að mynda vinahóp í fyrsta skipti í langan tíma.

Ég ætla að láta þetta duga en svara gjarnan einhverjum spurningum ef hv. þingheimur hefur þær.