151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

norðurskautsmál 2020.

498. mál
[18:29]
Horfa

Frsm. ÍNSM (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég byrja svo sem aðeins á þessum fjarfundarmálum. Það hafa jú verið ákveðin vandræði í gangi með þetta þingmannastarf út af veðurlagi, samgöngum og öðru slíku þannig að vissulega eru fjarfundirnir góðir og verða til frambúðar að einhverju leyti. En persónulegu tengslin eru líka mikilvæg og þau verða auðveldari ef menn eru saman. Og jafn furðulegt og það nú er þá held ég — eða kannski er það ekki furðulegt — að hluti af því að halda þessu svæði í lágspennu sé bara hreinn og klár kunningsskapur, vinátta milli þessa fólks sem hittist svo og svo mörgum sinnum á ári í svo og svo mörg ár. Það skiptir máli. Þannig að við skulum vona að þetta verði blanda af hvoru tveggja.

Varðandi hafið höfum við ályktað um það nokkrum sinnum. Hluti af þessum 30 og eitthvað ályktunum frá þessum ráðstefnum sem venjulega hafa verið í gangi á tveggja ára fresti hafa snúið að hafinu. Við erum að reyna að sjóða þetta niður núna og fækka þessum ályktunum, eða punktum í hverri ályktun, vegna þess að þeir hafa margir verið yfir 30. Það er raunverulega of mikið.

En hvað orkumálin varðar held ég að vindorkan sé stóri lykillinn, vatnsorka að einhverju leyti og jarðvarmi á örfáum stöðum. Vatnsorkan er vandamál vegna kuldans á veturna mjög víða en vindurinn er nægur á norðurslóðum. Ég held því að litlar og meðalstórar vindorkuvirkjanir séu lykillinn að orkumálunum á norðurslóðum. Ég get komið aftur inn á það í seinna andsvari.