151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

norðurskautsmál 2020.

498. mál
[18:46]
Horfa

Frsm. ÍNSM (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir þessar hugleiðingar og ég er henni sammála um meira eða minna allt. Þessi litla nefnd sem ég er formaður fyrir með svona löngu nafni er mjög lítill þáttur í þessu öllu saman. Ef við ætlum að auka norðurslóðastarfið, og ég segi auðvitað já, takk við því, þá virðist vera meiri áhugi á því að auka það eða halda því sterku utan þeirra ríkja sem mynda Norðurskautsráðið en innan. Það er bara af því að við erum hérna að okkur finnst þetta kannski sjálfsagt allt saman. En mig langar að telja upp hvaða tæki við höfum. Við höfum Norðurskautsráðið. Við höfum þingmannaráðstefnuna, svona litla. Við höfum Hringborð norðurslóða, sem er risastór vettvangur, umræðuvettvangur, fræðsluvettvangur og kynningarvettvangur milli fólks, hefur enga lagalega fúnksjón eða lagalega stöðu. Það er efnahagsráð norðurslóða sem vill gleymast. Það er strandgæslusamvinnuráð norðurslóða, sem vill gleymast. Það er Northern Forum, sem er á sveitarstjórnarstigi. Það er Northern Dimension, þar sem eru Rússland, Noregur, Ísland og Evrópusambandið í samvinnu. Svo er það IASC, sem er norðurslóðasamvinna á vísindasviðinu og síðan Háskóli norðurslóða. Sjáið hvað við höfum nú þegar. Þannig að ég held að ef við einbeitum okkur að því að vinna í þessu þurfum við ekki að bæta við einhvers konar miðstöð eða stofnun hér. Við þurfum bara að vinna með þetta. Ég vil heyra viðbrögð hv. þingmanns við því.