151. löggjafarþing — 53. fundur,  4. feb. 2021.

NATO-þingið 2020.

500. mál
[18:54]
Horfa

Frsm. ÍNATO (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég flyt hér skýrslu Íslandsdeildar NATO-þingsins fyrir árið 2020.

Á vettvangi NATO-þingsins árið 2020 bar hæst umræðu um þau áhrif sem heimsfaraldur kórónuveiru hafði á málefnasvið þingsins og viðbrögð aðildarríkja við faraldrinum. Eftir að heimsfaraldurinn breiddist út í aðildarríkjum NATO-þingsins í mars var tekin ákvörðun um að aflýsa skipulögðum fundum og vorfundi þingsins sem fyrirhugað var að færi fram í Kænugarði í maí. Í framhaldinu voru allir fundir og ráðstefnur færðar yfir á rafrænt form auk þess sem gerðar voru breytingar á starfsreglum NATO-þingsins svo hægt væri að afgreiða brýn mál á fjarfundum, svo sem að kjósa nýjan forseta NATO-þingsins, og koma í veg fyrir að faraldurinn takmarkaði enn frekar störf þingsins.

Heimsfaraldurinn setti mark sitt á starf þingsins á árinu og unnu allar málefnanefndir þingsins skýrslur um Covid-19 út frá sínu málefnasviði. Þá var stofnaður vettvangur fyrir formenn landsdeilda til skoðanaskipta um faraldurinn auk framsetningar fjölbreyttra upplýsinga um faraldurinn á vefsvæði þingsins. Þingmönnum var tíðrætt um efnahagslegar afleiðingar heimsfaraldursins sem einn mesta óvissuþátt komandi ára og þótti ljóst að opinber fjármál yrðu eitt erfiðasta verkefni aðildarríkjanna. Þá ályktaði þingið um áframhaldandi fjárfestingar bandalagsins í varnarmálum eftir Covid-19 og efnahagslegt þol og heimsfaraldra.

Staða kvenna í öryggis- og varnarmálum fékk aukna athygli á árinu. Þingið ályktaði um jafnréttismál innan NATO og mikilvægi þess að innleiða þau í starfsemi og stefnur tengdar öryggis- og varnarmálum með nánari útfærslu á innleiðingu öryggisályktunar Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Íslandsdeild fagnaði ályktuninni og lagði áherslu á að jafnréttissjónarmið yrðu innleidd í allri starfsemi NATO, bæði í hernaðarlega uppbyggingu og pólitíska.

Þá vakti Íslandsdeild athygli á málefnum norðurslóða á fundum NATO-þingsins. Í svari framkvæmdastjóra NATO við fyrirspurn frá Íslandsdeild á ársfundi þingsins kom fram að bandalagið myndi í auknum mæli horfa til svæðisins. Mikilvægi norðurslóða hefði aukist, m.a. með bráðnun jökla, aukinni hernaðarviðveru Rússa og miklum áhuga Kína á norðurslóðum. NATO legði því aukna áherslu á norðurslóðir og hefði aukið sýnileika sinn, fjölgað heræfingum og bætt varnir gegn kafbátum. Þingmenn voru þó sammála um mikilvægi þess að viðhalda lágri spennu á svæðinu eins og verið hefði, þrátt fyrir að hernaðarviðvera, einkum Rússa, hefði aukist.

NATO-þingið sendi framlag sitt til sérfræðihóps og framkvæmdastjóra NATO um það hvernig efla megi samstöðu aðildarríkjanna og pólitískt samráð undir merkjum NATO 2030. Þingið samþykkti einnig ályktun um málið þar sem NATO er hvatt til þess að uppfæra stefnumótun sína í ljósi breyttra aðstæðna. Í henni er m.a. lagt til að bandalagið viðhaldi sterkum vörnum gagnvart Rússum og dragi þá til ábyrgðar fyrir að brjóta alþjóðalög en verði áfram opið fyrir samtali.

Málefni Rússlands og Kína voru einnig í brennidepli á árinu. Meðlimir þingsins lýstu yfir áhyggjum af auknum hernaðarumsvifum Rússa, nútímavæðingu herafla þeirra og sniðgöngu á alþjóðaskuldbindingum. Þá ályktaði þingið um efnahagslega getu Kína og stefnumótun yfir Atlantshaf. Þar er m.a. lagt til að NATO meti þau tækifæri og áskoranir sem felast í aðgerðum Kínverja á alþjóðavísu og kanni möguleika á nánari samræðum. Skoða beri áhrif Kína á valdajafnvægi í heiminum á breiðum grunni. Að auki lýstu meðlimir þingsins yfir áhyggjum af þeirri ógn sem stafaði af falsfréttaherferðum um heimsfaraldurinn, sem einkum kæmu frá Rússlandi og Kína.

Af öðrum stórum málum sem tekin voru til umfjöllunar á fundum NATO-þingsins árið 2020 má nefna umræður um það hvernig NATO geti styrkt samstarf sitt við Evrópusambandið, ástandið við Svartahaf í ljósi efnahagslegrar og landfræðilegrar spennu á svæðinu, nýsköpun í varnarmálum og leiðir til að auka fræðslu og þekkingu á bandalaginu. Einnig var rætt um þróun mála í Afganistan og áframhaldandi stuðning bandalagsins við stjórnvöld í landinu, vopnuð átök í Nagorno-Karabakh og harkaleg viðbrögð stjórnvalda í Hvíta-Rússlandi við mótmælum í kjölfar forsetakosninga þar í landi í ágúst 2020.

NATO-þingið er þingmannasamtök sem hefur allt frá árinu 1955 verið vettvangur þingmanna aðildarríkja NATO til að ræða öryggis- og varnarmál. Fram til ársins 1999 bar þingið heitið Norður-Atlantshafsþingið, en heitir síðan NATO-þingið. Á síðustu árum hefur aðildar- og aukaaðildarríkjum NATO-þingsins fjölgað ört og hefur starfssvið þess verið víkkað í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa í ríkjum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum og ríkjum í Mið- og Austur-Evrópu. Níu lýðræðisríki úr hópi fyrrverandi kommúnistaríkja eiga nú aukaaðild að þinginu, auk hlutlausu Evrópuríkjanna fjögurra, Austurríkis, Sviss, Svíþjóðar og Finnlands, sem þýðir að þau geta tekið þátt í störfum og umræðum á þinginu. Störf þingsins beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild, efnahagslegum og pólitískum vandamálum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og hinu hnattræna öryggiskerfi. Með Rose-Roth-áætluninni styður þingið nú einnig við þróun þingbundins lýðræðis í ríkjum álfunnar og nálægum ríkjum.

Það er hér síðan ágætur kafli um starfsemi þingsins sem menn geta lesið sér til um. Ég tek því skemmri skírnina og minnist aðeins á málefnanefndir þingsins, hvernig starfið og hlutverk og starfsemi þingsins fer fram.

Starfsemi þingsins fer að mestu fram í fimm málefnanefndum, stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og nefnd um borgaralegt öryggi. Auk þess fer mikið starf fram á vegum Miðjarðarhafshópsins sem þó hefur ekki stöðu formlegrar málefnanefndar. Þessar nefndir eru meginvettvangur umræðna, þær fjalla um samtímamál sem upp koma á starfssviði þeirra og vinna um þau skýrslur. Nefndarálit eru oftast sett fram í formi tilmæla, yfirlýsinga eða ályktana sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um. Tilmælum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins, sem fer með æðsta ákvarðanavald innan NATO, og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða. Ályktunum þingsins er hins vegar beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna.

Á NATO-þinginu eiga sæti 269 þingmenn frá aðildarríkjunum 30. Fjöldi fulltrúa frá hverju landi ræðst að mestu af fólksfjölda. Stærsta sendinefndin er sú bandaríska með 36 þingmenn en Ísland er í hópi þeirra smæstu með þrjá þingmenn.

Forystumenn þingsins eru sjö og eru sex þeirra, forseti og fimm varaforsetar, kjörnir ár hvert af fulltrúum á þingfundi. Sjöundi embættismaðurinn er gjaldkerinn en hann kýs stjórnarnefndin annað hvert ár. NATO-þinginu er stjórnað af stjórnarnefnd en í henni eiga sæti forseti, varaforsetar, gjaldkeri og nefndarformenn auk formanna allra landsdeilda aðildarríkja NATO.

Hér er kannski gaman að geta þess að allir fimm varaforsetar NATO-þingsins í dag eru konur, allar kosnar á ársfundinum í nóvember.

Íslandsdeild NATO-þingsins og starfsemi hennar. Aðalmenn Íslandsdeildar voru árið 2020 Njáll Trausti Friðbertsson formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Þorgerður K. Gunnarsdóttir varaformaður, þingflokki Viðreisnar, og Willum Þór Þórsson, þingflokki Framsóknar. Ritari Íslandsdeildar var Arna Gerður Bang alþjóðaritari. Og rétt er að þakka henni fyrir ritun skýrslu og skrifin sem hafa tengst þessu viðamikla plaggi sem hér er lagt fram.

Á síðasta ári var bara einn hefðbundinn fundur, við skulum kalla hann snertifund. Annars var allt rafrænt. Febrúarfundurinn sem haldinn var í Brussel 17.–19. febrúar var heilmikill fundur. Það sem gerðist kannski helst á þeim fundi var að Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, var gestur fundarins í annað skipti á síðustu tveimur árum. Með henni voru 40–50 þingmenn, bæði í fyrra og hittiðfyrra, sem höfðu komið á öryggisráðstefnuna í München og komu síðan á febrúarfundinn í Brussel. Það að slíkur fjöldi hafi komið sýnir kannski hvernig þeir líta á þetta í bandaríska þinginu og í öldungadeildinni. Það hefur ekki gerst áður á fundum NATO-þingsins að slíkur fjöldi hafi komið til Brussel.

Í haust var stjórnarnefndarfundur og þá tóku þátt í fjarfundi Njáll Trausti Friðbertsson formaður, Þorgerður K. Gunnarsdóttir varaformaður og Arna Gerður Bang alþjóðaritari. Á dagskrá var meðal annars heimsfaraldur kórónuveiru, stjórnmálaástandið í aðildarríkjunum, málefni Hvíta-Rússlands og starfið fram undan.

Næst var rætt um stjórnmálaástandið í aðildarríkjunum með áherslu á heimsfaraldur Covid-19, ástandið í Hvíta-Rússlandi og átökin í Nagorno-Karabakh auk þess sem nefndarmenn fordæmdu harðlega morðtilraun á rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. Forseti þingsins sagði aðildarríkin standa frammi fyrir miklum áskorunum, faraldurinn væri enn í vexti á heimsvísu og meiri hluti íbúa Evrópu væri berskjaldaður fyrir sýkingu. Á fordæmalausum tímum sem þessum væri mikilvægt að takmarkanir á frelsi almennra borgara væru tímabundnar, nauðsynlegar og löglegar. Aðildarríkin þyrftu áfram að bregðast hratt við heimsfaraldrinum og tryggja aðhald löggjafans með framkvæmdarvaldinu.

Þá lýstu nefndarmenn yfir áhyggjum af ástandinu í Hvíta-Rússlandi og ótryggri stöðu í landinu þar sem mótmæli höfðu staðið yfir nær sleitulaust frá forsetakosningunum í ágúst. Dr. Karl Lamers, formaður þýsku landsdeildarinnar, greindi frá því að hann og Svetlana Tsíkhanovskaja, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Hvíta-Rússlandi, hefðu átt fund saman nýverið. Hann sagði að hún væri boðberi friðar og sannfærð um að íbúar Hvíta-Rússlands héldu áfram að mótmæla friðsamlega og ekki láta kúgunarvald þagga niður í sér. Hann sagði mikilvægt að NATO-þingið tæki til frekari umræðu málefni Hvíta-Rússlands en tók fram að Tsíkhanovskaja hefði áréttað að hún vildi ekki utanaðkomandi afskipti af málinu. Þá lagði franski þingmaðurinn Philippe Folliot áherslu á að NATO-þingið tæki til umræðu morðtilraun á rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní og sendi rússneskum stjórnvöldum skýr skilaboð þar sem tilræðið væri fordæmt harðlega.

Ársfundurinn 18.–23. nóvember var rafrænn eins og aðrir fundir frá og með febrúarfundinum. Hann stóð yfir í sex daga, fjarfundir voru í 4–5 tíma á dag og náðu yfir 11 tímabelti. Þetta var umfangsmikill fundur.

Um 280 þingmenn frá 30 aðildarríkjum NATO og fulltrúar 13 annarra ríkja sóttu ársfundinn. Meginumræður fundarins fóru fram í fimm málefnanefndum þingsins á grundvelli skýrslna, sem unnar voru af nefndarmönnum, og fyrirlestra alþjóðlegra sérfræðinga um öryggismál. Þá var haldinn þingfundur þar sem fjallað var um þau mál sem hæst hafði borið í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu og greidd atkvæði um ályktanir og ákvarðanir þingsins. Helstu umræðuefni fundarins voru öryggismál á tímum Covid-19, framtíð NATO og áhrif Kína á valdajafnvægi í heiminum. Einnig fóru fram umræður um það hvernig NATO gæti styrkt samstarf sitt við Evrópusambandið, hernaðaruppbyggingu Rússa og innleiðingu ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.

Nánari upplýsingar um einstaka nefndarfundi í nefndum þingsins má finna í skýrslu NATO-deildarinnar.

Hinn eiginlegi þingfundur NATO-þingsins fór fram 23. nóvember þar sem tignargestir fluttu ávörp og svöruðu spurningum fundarmanna. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO. Stoltenberg lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi samstöðu aðildarríkja NATO á tímum heimsfaraldurs og fjölmargra öryggisáskorana. Hann sagði NATO eina vettvanginn þar sem ríki Evrópu og Norður-Ameríku hittust daglega og mikilvægt að nýta hann enn betur til hreinskilinnar umræðu um öryggismál. Þá var herafla NATO vottuð virðing fyrir hlutverk sitt í baráttunni gegn Covid-19 og hvatt til aukinnar alþjóðlegrar samvinnu.

Vakin var athygli á málefnum norðurslóða á þingfundinum og Stoltenberg spurður hvort NATO myndi horfa í auknum mæli til svæðisins. Hann svaraði því játandi og sagði mikilvægi norðurslóða hafa aukist, m.a. með bráðnun jökla á svæðinu, aukinni hernaðarviðveru Rússa og miklum áhuga Kína. NATO legði því aukna áherslu á norðurslóðir og hefði aukið sýnileika sinn, fjölgað heræfingum á svæðinu og bætt varnir gegn kafbátum. Nauðsynlegt væri að Norður-Atlantshafið væri varið og sjógeta bandalagsins viðunandi. Þá hefði NATO opnað nýja Atlantshafsherstjórn í Norfolk í Virginíuríki í Bandaríkjunum.

Njáll Trausti Friðbertsson tók til máls á þingfundinum og fagnaði því að sérstök umræða hefði farið fram um frekari innleiðingu ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Eitt af markmiðum ályktunarinnar væri að stuðla að sanngjarnara umboði bæði karla og kvenna þegar horft væri til varnarmála og friðarumleitana. Þá spurði Njáll Trausti framkvæmdastjóra NATO hvort hann sæi aukna áherslu hjá bandalaginu á jafnréttismál og hvort það myndi styrkja stöðu kvenna markvisst innan NATO. Stoltenberg sagði það forgangsmál að jafnréttissjónarmið yrðu innleidd í alla starfsemi NATO, bæði hernaðarlega og pólitíska uppbyggingu. Auk þess þyrfti að uppræta kynbundna misnotkun og áreitni innan bandalagsins. Þá nefndi hann sérstaklega starf NATO í Afganistan þar sem bandalagið hefur lagt áherslu á að virkja og styðja konur á svæðinu.

Bandaríski þingmaðurinn Gerald E. Connolly var kosinn nýr forseti NATO-þingsins og tók hann við embættinu af Attila Mesterházy frá Ungverjalandi. Hann kynnti fundargestum ályktun ársfundarins sem ber yfirskriftina NATO 2030: sterkara og sameinaðra bandalag á alþjóðavettvangi. Á leiðtogafundi NATO í desember 2019 var Stoltenberg falið að meta hvernig efla mætti samstöðu aðildarríkjanna og pólitískt samráð. Sér til ráðgjafar skipaði Stoltenberg hóp tíu sérfræðinga til að ræða stöðu og framtíð NATO undir merkjum NATO 2030. Með ályktun ársfundarins er NATO hvatt til að uppfæra stefnumótun sína í ljósi breyttra aðstæðna. Lagt er til að bandalagið viðhaldi sterkum vörnum gagnvart Rússum, dragi þá til ábyrgðar fyrir að brjóta alþjóðalög en verði áfram opið fyrir samtali. Varðandi málefni Kína var lagt til að NATO mæti þau tækifæri og áskoranir sem fælust í metnaði og aðgerðum Kínverja á alþjóðavísu og kannaði möguleika á nánari samræðum.

Eftir því sem leið á árið og NATO-þingið þróaði notkun fjarfundabúnaðar í nefndastarfi fór fundum nefnda fjölgandi. Njáll Trausti Friðbertsson tók þátt í fjarfundum vísinda- og tækninefndar og stjórnmálanefndar NATO-þingsins auk fjarfundar formanna Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (NB8). Þá tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þátt í fjarfundum varnar- og öryggismálanefndar og vinnuhóps um Miðjarðarhafssvæðið. Einnig tók Willum Þór Þórsson þátt í fjarfundum efnahagsnefndar NATO-þingsins. Að auki sóttu fulltrúar Íslandsdeildar ýmsa fjarfundi sem skipulagðir voru á árinu um málefni NATO-þingsins.

Í fylgiskjali koma síðan fram þær ályktanir sem voru samþykktar á NATO-þinginu árið 2020 og hægt er að finna þær í skýrslunni. Þetta er því viðamikið plagg og af mörgu að taka enda starf NATO-þingsins mjög öflugt. Það er ótrúlegt hvað hefur tekist að halda því gangandi á þessum Covid-tímum. Samt er ljóst að það er ekki sama starfið þegar þingmenn hittast á fjarfundum eða á alþjóðafundum. Sérstaklega er erfitt að stýra á stóru fundunum.

Mig langar rétt í lokin að minnast á ráðstefnu á vegum Rose-Roth, þar sem ég flutti ekki skýrsluna í fyrra. Ég sótti þann fund í Tyrklandi í apríl 2019. Við sátum í fjóra daga, í tíu tíma á dag, og fengum fyrirlestra frá hershöfðingjum og færustu háskólaprófessorum hvaðanæva úr heiminn í alþjóðamálum og í stóra samhenginu. Þarna var mikið talað um og verið kynna okkur arabíska vorið, hvað gerðist í Norður-Afríku, Túnis og Egyptalandi, upphafið að Sýrlandsstríðinu, flóttamannastrauminn til Evrópu og þá óreiðu sem verður í pólitík í Evrópu í framhaldinu, þetta niðurbrot á pólitíkinni, að flokkum fjölgi og, eins og við þekkjum, popúlistum í pólitíkinni og slíku. Það getur verið mjög fróðlegt á svona ráðstefnu að sjá þetta samhengi hlutanna. Það verður svolítið ljóslifandi.

Það er eitt atriði sem ég vildi bara rétt ljúka með sem kom frá einum háskólaprófessornum. Það var mjög áhugavert. Hann sagði að það væru 200 þjóðríki í heiminum og það væru innan við 20% sem byggju raunverulega við það sem við köllum alvörulýðræði, 20% af heildinni. Það væri bara ekkert sjálfsagt við þetta fyrirbæri og við þyrftum virkilega að hafa fyrir því að halda lýðræðinu. Það væri mjög nýtilkomið hugtak, lýðræðið. Ég vildi koma þessu að vegna þess að ég gat ekki flutt ræðuna í fyrra því að þá var ég í Brussel. Það sem hún sagði á þessum fundi situr enn þá í manni og maður er búinn að vera að hugsa um það síðan þá, þ.e. þetta með lýðræðið. Og við sjáum hvað er að gerast vítt og breitt um heiminn þessa dagana sem tengist því.