151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

atvinnuleysi og veiðigjöld.

[13:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ef einhver hefur velkst í vafa um mikilvægi samneyslunnar og nauðsyn á getu stjórnvalda til að grípa inn í með stórfelldum hætti hefur þeirri óvissu vonandi verið eytt núna í Covid-faraldrinum. Um allan heim hafa stjórnvöld gripið til stórtækra aðgerða til að aðstoða atvinnulíf og einstaklinga með áður óþekktum hætti, líka hér á Íslandi. En þó það hafi verið gert er jafn ljóst að við deilum um áherslurnar. Að mati Samfylkingarinnar hefur of litlu verið varið í að aðstoða tugþúsundir manna sem misst hafa vinnuna og allt of lítil áform um að skapa ný störf. Nú eru 27.000 manns atvinnulausir og samkvæmt könnun rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins á um helmingur þessa fólks erfitt með að ná endum saman. Þrír hópar skera sig úr; innflytjendur, konur og ungt fólk.

Lítum aðeins á stöðu unga fólksins. 42% segjast búa við slæma andlega heilsu og 60% hafa þurft að neita sér um læknisþjónustu á síðasta hálfa ári. Allar aðvörunarbjöllur klingja, skammtímaáhrifin eru augljós en því miður langtímaáhrifin líka. Ríkisstjórnin telur sig ekki geta gert meira fyrir þennan hóp en skoðum aðeins forgangsröðunina. Á síðasta ári greiddi útgerðin sér 4,8 milljarða í veiðigjöld. Sú tala segir kannski ekki mikið nema þegar við horfum á samhengið. Á sama tíma greiddu sjö eigendur stærstu útgerðarfyrirtækjanna sér margfaldan þann arð á við það sem greitt er í veiðigjöld og innan við 10% af samanlögðum rekstrarhagnaði fyrirtækja. Telur ráðherra þetta hlutfall vera eðlilegt og sanngjarnt eða kemur ef til vill til greina að hækka veiðigjöld, a.m.k. tímabundið, í ljósi aðstæðna til að jafna byrðarnar í samfélaginu?