atvinnuleysi og veiðigjöld.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á könnun sem birt var nú í vikunni um þá hópa sem telja sig eiga erfitt með að ná endum saman. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að við skoðum sérstaklega hvað við getum gert til að koma til móts við þessa hópa. Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir því að atvinnuleysisbætur hafa verið hækkaðar um 35% á kjörtímabilinu einmitt til að mæta atvinnuleitendum. Það er líka mikilvægt að við veltum því fyrir okkur hvað fleira er hægt að gera. Ég minni á að skattbyrði þessa hóps var lækkuð. Og af því að hv. þingmaður nefnir líka ungt fólk þá vil ég minna á hækkun barnabóta sem vissulega kemur sér vel fyrir barnafólk sem flest hvað er ungt að aldri. En við þurfum að taka þetta til skoðunar og ég nefni sérstaklega innflytjendur í þessum hópi sem eru auðvitað langflestir líka í hópi atvinnuleitenda.
Ég held að við séum sammála um mikilvægi samneyslunnar og ég held að við séum sammála um þau markmið að hana eigi að nýta til að jafna kjörin eins og við höfum verið að gera í þessum málum.
Hvað varðar veiðigjöldin þá vil ég minna á að sú breyting sem gerð var á því gjaldi á þessu kjörtímabili var að afkomutengja það. Það er rétt að útgerðin skilaði 4,8 milljörðum á nýliðnu ári. Árið 2021 er gert ráð fyrir að sú álagning nemi 7,5 milljörðum sem byggist á afkomu veiða ársins 2019. Hér var ég m.a. sökuð um að standa fyrir lækkun veiðigjalds og væntanlega verð ég þá núna sögð vera að hækka veiðigjald. Hvorugt á við rök að styðjast. Það sem var gert var að afkomutengja veiðigjaldið. Síðan er hægt að ræða það hvert hlutfallið eigi nákvæmlega að vera. En ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður sé mér ekki sammála um að það sé eðlilegt að þetta gjald fylgi afkomu fyrirtækjanna þannig að þegar vel árar í sjávarútvegi, eins og gerðist 2019, þá skili það sér inn í ríkissjóð.