atvinnuleysi og veiðigjöld.
Herra forseti. Fyrst hæstv. ráðherra spyr mig í þessum fyrirspurnatíma hvort ég telji ekki að það ætti að miða við afkomu, þá hef ég margoft sagt hér að ég tel langeðlilegast að réttasta gjaldið fengist með því að láta fyrirtækin bjóða í þessa takmörkuðu auðlind og það eiga þau svo sannarlega að gera. Ég spyr hins vegar ráðherra aftur hvort henni finnist í ljósi þessara aðstæðna þetta hlutfall vera sanngjarnt þegar fyrirtækin eru að moka út arði. Við getum ekki búið við það að örfáar fjölskyldur hér í landinu séu að mylja undir sig milljarða fyrir nýtingu á takmörkuðum, sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar á meðan tugþúsundir manna eiga erfitt með að ná endum saman, geta ekki sótt sér læknisþjónustu og börn þeirra munu kannski líða skort sem mun hafa áhrif á þau alla ævi.
Ég spyr því aftur: Kemur til greina að hækka veiðigjöldin tímabundið og finnst hæstv. ráðherra þetta hlutfall, sem hún vissulega ákvað, vera eðlilegt?