151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

atvinnuleysi og veiðigjöld.

[13:08]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður setur þetta í samhengi við aðgerðir til að stuðla að jöfnuði í samfélaginu og allt það sem ég taldi hér upp stefnir í þá átt. Ég nefndi reyndar ekki kostnað í heilbrigðiskerfinu, sem hv. þingmaður kom inn á, en á þessu kjörtímabili mun kostnaður fólks á Íslandi við heilbrigðisþjónustu lækka þannig að við verðum komin á par við önnur Norðurlönd þangað sem hv. þingmaður hefur einmitt viljað beina sinni flugvél þegar hann er spurður um það hvaða samfélagsgerð hann vilji leggja til. Skiptir það máli fyrir þá sem höllustum fæti standa? Ég segi já við því. Hvað varðar veiðigjöldin, af því að hv. þingmaður vill setja þau í þetta samhengi, þá fannst mér það vera sanngjarnar tillögur sem við samþykktum á þinginu þar sem ákveðið var að leggja til 33% gjald af afkomu fiskveiða samkvæmt útreikningum og nýjustu skattframtölum. Spurningin sem hv. þingmaður setur fram er þessi: Er það sanngjarnt hlutfall? Auðvitað á eftir að koma reynsla á það. Í raun og veru erum við að sjá veiðigjaldið hækka um 56%, væntanlega 2021, af því við erum að afkomutengja það. (Forseti hringir.) Mér fannst þetta hlutfall ásættanlegt, enda studdi ég það frumvarp sem lagt var fram fyrir rúmu ári eða svo.