samgöngubætur á Austurlandi.
Virðulegi forseti. Eitt af því dýrmæta í starfi okkar þingmanna er þegar við fáum tækifæri til að nýta kjördæmavikur og fara um kjördæmin okkar og um landið allt. Við í þingflokki Viðreisnar heimsóttum Austurland síðustu daga, fórum t.d. á Egilsstaði, en ekki síst var áhrifaríkt að sjá og upplifa hina miklu samstöðu á Seyðisfirði, hvernig íbúar bæjarins og nærliggjandi sveita hafa tekið höndum saman eftir áfallið mikla og skriðuföllin miklu í desember. Það er alveg með ólíkindum hvernig þau hafa tæklað það mál allt saman. Það er guðs mildi að ekkert manntjón varð en tjónið á menningarverðmætum og fjártjón íbúanna hefur hins vegar ekki komið fyllilega í ljós, fyrir utan að það þarf að huga vel að andlegri líðan fólksins. Ég vil hvetja forsætisráðherra til að fylgja því eftir sem ríkisstjórnin sagði einmitt út af þessum miklu atburðum. Ákallið var hins vegar skýrt, alveg sama hvar við komum, hvort sem var á Egilsstöðum, niðri á fjörðum, á Eskifirði eða Seyðisfirði. Það þarf að tryggja samgöngur milli byggða allt árið um kring. Einn maður lýsti því þannig að hann hefði farið með dóttur sína, sem hafði slasast á höfði, frá Egilsstöðum og keyrt í 50 mínútur í Neskaupstað. Ef alvarleg blæðing hefði komið í ljós hefði þurft að fara aftur á Egilsstaði og bíða eftir sjúkraflugi eða fá sjúkraflug suður. Þetta er saga sem við fáum að heyra aftur og aftur, fyrir utan að það er náttúrlega eðlilegt að vera með skanna á Heilbrigðisstofnun Austurlands. Samgöngurnar skipta miklu máli fyrir atvinnusvæðin.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra að tvennu, en ég sé að tíminn er að renna út. Er hún sammála mér í því að við eigum að hugsa lengra varðandi samgöngubætur á Austurlandi, viðurkenna það að við ætlum að byggja upp ákveðna kjarna? Það þýðir að við forgangsröðum á þessa kjarna. Er hún sammála mér í því að við þurfum að stefna að því að samtengja firðina og Egilsstaði, þ.e. Seyðisfjörð, Neskaupstað, Eskifjörð og Reyðarfjörð og Egilsstaði, svokallaða samtengingu þar? (Forseti hringir.)
Hins vegar vil ég spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hún styðji það að aukið vald verði fært í hendur sveitarfélaganna til ákvörðunar atvinnuuppbyggingar. Á Seyðisfirði urðum við þess áskynja (Forseti hringir.) að það eru mjög skiptar skoðanir varðandi uppbyggingu fiskeldis. Er ekki ákjósanlegt (Forseti hringir.) að sveitarfélögin fái meira sjálfdæmi í þessum efnum, hvernig atvinnuuppbyggingu þau sjálf vilja sjá á sínu heimasvæði?