151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

samgöngubætur á Austurlandi.

[13:12]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls í fyrsta lagi á atburðunum á Seyðisfirði. Við erum hvergi nærri búin að ljúka þeim málum þó að mikið verk hafi verið unnið og ríkisstjórnin hefur tekið þetta nokkrum sinnum til umræðu. Það eru kannski nokkrir þættir sem mig langar að nefna í því samhengi. Þessir viðburðir höfðu gríðarleg áhrif á atvinnustarfsemi á Seyðisfirði og það þýðir að við þurfum að horfa sérstaklega til þess hvernig við getum stutt við þessa byggð þannig að aftur sé hægt að koma atvinnurekstri af stað. Í öðru lagi nefnir hv. þingmaður andlega heilsu og ég veit að Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur staðið vel í því að bjóða upp á áfallahjálp. Ég var einmitt að kalla eftir upplýsingum um það hversu margir hefðu nýtt sér hana. Við höfum lagt á það áherslu á þessu kjörtímabili að styðja við geðheilbrigðisþjónustu um land allt og ég vona að þetta hafi verið nýtt. Síðan eru það auðvitað ofanflóðavarnir sem við vorum áþreifanlega minnt á, bæði í snjóflóðunum á Flateyri fyrir rúmu ári, í Súgandafirði og svo þessum skriðuföllum. Það er mikilvægt að standa við þá ákvörðun sem við tókum um að flýta þeim framkvæmdum þannig að unnt sé að vinna miklu hraðar að því.

Varðandi samgöngur þá eru Fjarðarheiðargöng sem tengja Seyðisfjörð innan héraðs í forgangi núna hjá þessari ríkisstjórn. Öxi hefur sömuleiðis verið sett á dagskrá sem samvinnuverkefni og hugsunin er auðvitað sú að tryggja greiðar samgöngur innan þessa nýja sameinaða sveitarfélags. Hv. þingmaður spyr um tengingar í Fjarðabyggð, sem er auðvitað líka mikilvægt mál, ekki síst af því að hv. þingmaður nefnir stöðu sveitarfélaga. Það er töluverð umræða um það hvort Austurland, þ.e. Fjarðabyggð og Múlaþing, endi á því að verða eitt sveitarfélag. (Forseti hringir.) Maður skynjar það að sú umræða er í raun og veru þegar hafin í báðum þessum sveitarfélögum. Ég kem betur að hlutverki sveitarfélaga í seinna svari mínu.