samgöngubætur á Austurlandi.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að ég vil gjarnan fá svar varðandi sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga um atvinnuuppbyggingu og sjálfdæmi þeirra um uppbyggingu fiskeldis, ferðaþjónustu eða hvað það er sem þau telja rétt. Já, það má vel spyrja að því hvað þingmenn hér á suðvesturhorninu séu að vilja upp á dekk þegar kemur að málefnum landsbyggðarinnar. En það skiptir mjög miklu máli að við hugsum okkur sem eina heild, eitt land. Það þýðir að við þurfum líka að viðurkenna að þarfirnar eru mismunandi. Og þegar við komum t.d. á Austurland og heyrum alltaf — það er ár eftir ár af því að þetta er ekki í eina skiptið sem við förum þangað — sömu óskirnar um uppbyggingu í heilbrigðismálum, um skannann á stofnuninni, um uppbyggingu í samgöngum, þá ber okkur skylda til að reyna að koma með ákveðna framtíðarsýn. Ég fagna því sérstaklega að við ætlum að leggja áherslu á göng milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða. En við þurfum að hugsa þetta til lengri tíma og þess vegna vil ég spyrja: Hver er hugur hæstv. ráðherra til samtengingar þannig að við tengjum raunverulega saman heilbrigðisstofnanir og sjúkrahúsið á Norðfirði við önnur svæði á Austurlandi? Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt, líka til að draga að unga sem eldri á þetta svæði til að búa þarna, lifa og dafna.