aðgerðir á landamærum.
Herra forseti. Ég vil aðeins ljúka því sem ég nefndi hér um afhendingaráætlanir. Raunhæft er að reikna með því að afhending bóluefna aukist verulega á öðrum ársfjórðungi frá fyrsta ársfjórðungi. Það sjáum við t.a.m. vegna þess að verið er að tala um að afhending á bóluefni Janssen, sem vonir standa til að fái evrópskt markaðsleyfi í lok þessa mánaðar, geti hafist á öðrum ársfjórðungi; Pfizer er að auka framleiðslugetu sína, fyrir utan að núna er kominn samningur um bóluefni frá Curavac. Þess er líka vænst að hægt verði að hefja afhendingu þess á öðrum ársfjórðungi. Við höfum auðvitað fylgst með umræðunni í Evrópusambandinu þar sem einmitt kom fram í ræðu Ursulu von der Leyen í gær að þau hefðu lagt svo mikla áherslu á þróun sjálfra bóluefnanna að afhendingin hefði orðið út undan í áætlunum þeirra. Og það er réttmæt gagnrýni. En um leið standa væntingar mínar til þess að þessi afhending muni ganga töluvert hraðar á öðrum ársfjórðungi. Og af því að hv. þingmaður vill setja þetta í samhengi við (Forseti hringir.) sóttvarnaráðstafanir innan lands, herra forseti, þá geta orðið ákveðin tímamót þegar við erum búin að ljúka bólusetningu þeirra sem við köllum viðkvæma hópa, (Forseti hringir.) þ.e. eldri borgara. Við munum sjá marktæk áhrif, tel ég, á sóttvarnaráðstafanir innan lands þegar sá hópur hefur fengið sína bólusetningu.