nýsköpun, erlend fjárfesting og klasastefna.
Hæstv. forseti. Ég ætla að nota tækifærið hér og fá að ræða við hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um nýsköpun og tengja það við erlenda fjárfestingu og mótun opinberrar klasastefnu. Ég held að það sé algerlega óumdeilt að forsenda framþróunar og fjölbreytni atvinnulífs sé fólgin í nýsköpun og hún er alger grunnur að hagvexti og bættum lífskjörum og velferð, enda sjáum við mjög myndarlegan kafla í stjórnarsáttmála í upphafi þessa kjörtímabils um einmitt nýsköpun. Það hefur ýmislegt verið gert á þessu kjörtímabili og við sjáum það kannski helst í framlögum á fjárlögum en hlutfallslega er þetta sá málaflokkur sem við höfum aukið mest, um tæplega 75%.
Ég hef aðeins fylgst með mjög athyglisverðri umræðu undanfarna morgna í morgunþættinum Í bítið, þar sem m.a. hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafa komið inn í þá umræðu. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins nefndi að það skorti á að taka keflið í að laða að erlenda fjárfestingu. Nú skyldi maður ætla að öflugra stoðkerfi nýsköpunar væri meira aðlaðandi fyrir erlenda fjárfestingu og vænlegt í samkeppni um slík verkefni. Traust hagstjórn skiptir auðvitað verulega miklu máli og fyrirsjáanleiki og pólitískur stöðugleiki, þannig að það er fjölmargt annað. Forstjóri Íslandsstofu líkti þessu við boðhlaup og ef það er eitthvað sem kallar á samvinnu þá er það nýsköpun.
Ég myndi vilja fá innlegg hæstv. nýsköpunarráðherra og hennar skoðun á þessu (Forseti hringir.) og draga svolítið saman hvað hefur verið gert og hvernig það gæti nýst í þessari samkeppni okkar.