nýsköpun, erlend fjárfesting og klasastefna.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og þessar spurningar og fyrir að vekja athygli og máls á þessum mikilvægu málum. Við höfum á þessu kjörtímabili lagt mikla áherslu á nýsköpun í breiðum skilningi og við höfum að mínu viti nýtt Covid og kreppu mjög vel til að hlaupa hraðar, taka ákvarðanir hraðar og mikill stuðningur hefur verið við þær aðgerðir hér á þingi sem ég er mjög þakklát fyrir. Við byrjuðum á að gera loks stefnu fyrir Ísland, nýsköpunarlandið Ísland, í krafti smæðarinnar, en frasinn í krafti smæðarinnar hefur elst nokkuð vel ef maður lítur til þess hvernig okkur hefur farnast við að taka á málum varðandi heimsfaraldurinn og m.a. hvernig við höfum nýtt nýsköpun í þeim efnum. Við höfum aukið endurgreiðslur til rannsóknar- og þróunarverkefna, rýmkað heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga, auðveldað erlendum sérfræðingum að starfa tímabundið hér á landi og erum að leggja lokahönd á stofnun Kríu, sem búið er að fjármagna, sem er nýr hvatasjóður og mun leggjast á árarnar með einkafjármagni við fjárfestingar í þekkingardrifinni nýsköpun. Við höfum aukið fjármagn í Tækniþróunarsjóð. Við erum að birta auglýsingu um hvatastyrki fyrir landsbyggðirnar þar sem hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun á landsbyggðunum og efla atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggist á hugviti, þekkingu og nýrri færni. Við ætlum að kalla þessa styrki Lóu og þeir munu styðja við frumkvöðla og nýsköpunarverkefni og uppbyggingu innviða fyrir verðmætasköpun og atvinnulíf. Eitt af því sem við erum að reyna að gera er að svara spurningunni: Hvers vegna fara t.d. meiri fjármunir úr Tækniþróunarsjóði út á land? Við erum að bregðast við því með þessu.
Svo er það líka þannig að íslenskir frumkvöðlar tryggðu sér meiri fjármögnun í fyrra en árið á undan, yfir 17 milljarða, og meiri hlutinn kemur að utan þannig að það er ekki þannig að ekki sé erlent fjármagn að koma inn til landsins og erlend fjárfesting eigi sér ekki stað. En ég get alveg tekið undir að við þurfum að hlaupa hraðar. Þannig er bara staðan. Það eru allir að keppast um þessi tækifæri, um þessa verðmætasköpun, um þessi nýju störf, nýju vörur, (Forseti hringir.) til að gera heiminn betri. Ef við ætlum að taka þátt í því, sem við ætlum að gera, þá þurfum við að stilla saman strengi og við þurfum að hlaupa hraðar.