nýsköpun, erlend fjárfesting og klasastefna.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra þessi svör. Það er mjög mikilvægt að fá innlegg hæstv. ráðherra. Forstjóri Íslandsstofu líkti þessu við boðhlaup og ef mikilvægi samvinnu er á einhverjum vettvangi þá er það í nýsköpuninni. Ég fagna auðvitað vorboðanum góða. Þetta er mjög mikilvægt.
En ég ætlaði í seinni spurningunni að koma inn á opinbera klasastefnu. Þingið samþykkti í mars á síðasta ári að ráðherrann færi í slíka vinnu. Ég held að mikilvægt sé að fá upplýsingar um þá stöðu. Ég held að þeirri vinnu hljóti að fara að verða lokið. Kannski upplýsir hæstv. ráðherra um væntingar til þeirrar stefnu og hvernig hún tali við nýsköpunarstefnuna sem ráðherra kom inn á.