151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

nýsköpun, erlend fjárfesting og klasastefna.

[13:44]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Það er alveg rétt, þetta er boðhlaup. Gott samstarf Íslandsstofu og til að mynda ráðuneytis míns skiptir mjög miklu máli og breytingar á Íslandsstofu gera það líka. Nú er atvinnulífið með meiri hluta í stjórn þannig að ábyrgðin er líka mikil þar. Þetta er auðvitað mikið samstarf og viðvarandi verkefni.

Varðandi klasastefnu gengur sú vinna mjög vel. Ég geri ráð fyrir því eða óska alla vega eftir því að fá að koma hingað inn í þingið með þá stefnu til umræðu í næstu viku, sem er þá einni viku á eftir áætlun sem er nú innan skekkjumarka á mælikvarða stjórnkerfisins. Sú stefna er að mínu viti mjög góð, mjög sterk. Hún talar algerlega inn í nýsköpunarstefnu, stefnu Vísinda- og tækniráðs og inn í þá stefnu sem við höfum markað okkur. Það er líka jákvætt að sjá hvað það var auðveld fæðing að láta hana einmitt vera í svona góðu flútti við þær stefnur.

Mér líður vel með að segja að mér finnst við sem samfélag vera búin að taka ákvörðun um að vera nýsköpunarland. (Forseti hringir.) Við erum búin að taka ákvörðun um hvar við viljum vera sterk og hvar fókuspunktar okkar eru. Klasastefnan kemur bara eins og púsl inn í þá mynd. (Forseti hringir.) Þetta snýst um samstarf og Lóa er einmitt liður í því. Samstarfið sem verður til úti á landi er í raun klasasamstarf þannig að við erum klárlega á réttri leið.