stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Herra forseti. Ég tek hér til máls til þess, og í raun til þess eingöngu, að ræða þau mál sem að Alþingi snúa í þessu frumvarpi. Ég læt öðrum það eftir að ræða um önnur ákvæði frumvarpsins, áhugaverð sem þau þó eru. Mér finnst það bæði rétt og mér skylt sem forseta Alþingis að víkja að þeim grundvallarbreytingum sem lagt er til hér að gerðar verði á stöðu Alþingis, ekki síst gagnvart framkvæmdarvaldinu. Þær breytingar ganga allar í þá átt að undirstrika og styrkja enn frekar sjálfræði þingsins í eigin málum og þeim breytingum ber að fagna, það geri ég a.m.k.
Fyrst ber að nefna 8. gr. frumvarpsins en þar er með berum orðum lagt til að þingræðisreglan verði bundin í stjórnarskrá. Þannig skulu ráðherrar njóta stuðnings eða hlutleysis meiri hluta Alþingis. Hér er um að ræða grundvallarreglu sem stjórnskipun okkar hvílir á. Jafnframt er áhugaverð sú tillaga í ákvæðinu að skilgreina þingræðisregluna með jákvæðum hætti, að forseti geti óskað eftir yfirlýsingu Alþingis um stuðning eða hlutleysi við ríkisstjórn áður en hún er mynduð. Nánari ákvæði um framkvæmd þingræðisreglunnar er svo að finna í 13. gr. frumvarpsins um vantraust á einstaka ráðherra eða ríkisstjórn. Með þessum ákvæðum er með ótvíræðum hætti tekið af skarið um að sú þingræðishefð sem við höfum búið við verði bundin í stjórnarskrá, að hér sitji þingbundin ríkisstjórn.
Næst vil ég víkja máli mínu að þeim ákvæðum frumvarpsins sem lýsa því hvernig boðað er til þings að afloknum kosningum, samkomudeginum og um frestun á störfum þess, sbr. 12. og 20. gr. frumvarpsins. Þar er lagt til grundvallar að þingið sjálft hafi forræði á þessum málum. Þegar orðalag ákvæða gildandi stjórnarskrár, þ.e. 22., 23. og 35. gr., er skoðað nánar opnast gluggi til fortíðar, aftur til löngu liðins tíma og viðhorfa í reynd; skipulag sem má rekja til þess þegar við heyrðum undir Danakonung og samgöngur voru með allt öðrum hætti en nú er. Þannig segir í 22. gr., með leyfi forseta:
„Forseti lýðveldisins stefnir saman Alþingi eigi síðar en tíu vikum eftir almennar alþingiskosningar. Forsetinn setur reglulegt Alþingi ár hvert.“
Þá er í 23. gr. stjórnarskrárinnar gert ráð fyrir að forseti lýðveldisins geti frestað fundum Alþingis. Þó er það yfirleitt með samþykki Alþingis og alltaf ef frestunin varir lengur en í tvær vikur. Það verður hins vegar, þ.e. Alþingi, ekki kallað saman á þeim tíma nema meiri hluti þingmanna hafi krafist þess eða brýna nauðsyn beri til að mati forseta lýðveldisins, þ.e. í reynd forsætisráðherra. Gildandi stjórnarskrá gengur því út frá því að formlega sé það framkvæmdarvaldið sem stefnir Alþingi saman og frestar fundum þess, að vísu með aðkomu þingsins eins og áður sagði.
Í því frumvarpi sem við ræðum nú er lagt til í 12. gr. að einu afskipti framkvæmdarvaldsins af boðun þingsins séu þau að forseti Íslands setji Alþingi þegar það kemur saman að nýju eftir almennar alþingiskosningar. Þetta er eðlilegt og fer vel á því. Eins þykir mér líklegt og í raun sjálfsagt að forsetanum verði jafnan boðið til þingsetningar þó svo að ekki þurfi atbeina hans eða framkvæmdarvaldsins til boðunar þingsins, heldur verði það alfarið mál þingsins sjálfs verði þessar breytingar að veruleika. Atbeini framkvæmdarvaldsins að ákvörðunum um boðun þingsins verður því fyrst og fremst táknrænn og afskipti af ákvörðunum um þingfrestun falla alfarið niður. Þess í stað frestar þingið sjálft fundum sínum og forseti Alþingis getur kvatt þing saman til fundar ef nauðsyn ber til. Þá yrði honum það skylt ef meiri hluti þingmanna eða ríkisstjórn krefst þess. Aðkoma ríkisstjórnar að slíkri ákvörðun er hins vegar nýmæli á þennan hátt en verður að teljast eðlileg í ljósi stöðu framkvæmdarvaldsins gagnvart Alþingi og samþættingu þessara valdþátta.
Í samhengi við 20. gr. frumvarpsins sem fjallar um samkomudaginn, sbr. 35. gr. stjórnarskrárinnar, er hann nánast fastákveðinn, þ.e. fjórði þriðjudagur eftir að kosningar hafa farið fram. Að mati þingsins er mikilvægt að sá tími sem líður frá alþingiskosningum sé ekki lengri en þörf er á. Telja verður þennan tíma hæfilegan þegar horft er til reynslunnar en gera verður ráð fyrir því að landskjörstjórn hafi rúman tíma til þess að birta endanleg úrslit alþingiskosninga. Þá getur þingið þurft að leysa úr kærumálum sem kunna að vera um gildi kosninganna og kosningu einstakra þingmanna, fjalla um ágreining um gildi einstakra kjörseðla sem lagðir hafa verið fyrir þingið og undirbúa setningu þingsins að öðru leyti, en slíkt krefst eðlilega ákveðins undirbúnings. Tekið er undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að ekki er útilokað að þing gæti komið saman fyrr ef aðstæður eru þannig í samfélaginu.
Í stað þess að samkomudagur Alþingis skuli vera 1. október ár hvert, sem breyta megi með lögum eins og nú er, er í frumvarpinu lagt til að kveðið skuli á um samkomudag reglulegs Alþingis ár hvert með lögum og skiptingu starfstíma þess í löggjafarþing. Hér er um að ræða mikilsverða breytingu sem undirstrikar enn frekar sjálfræði þingsins til að ákveða sjálft innra skipulag sitt. Ég sé fyrir mér ýmsa áhugaverða möguleika við að skipuleggja betur störf þingsins í framtíðinni en það yrði að sjálfsögðu viðfangsefni nýs þings verði frumvarp þetta að lögum. Horfi ég þá einnig til þeirrar mjög svo tímabæru tillögu sem felst í 21. gr. frumvarpsins, um að frumvörp geti lifað milli þinga samkvæmt reglum sem Alþingi setur þá í sín starfslög, sín þingsköp. Þessi möguleiki getur að mínu mati haft verulega þýðingu fyrir störf þingsins og auðveldað umbætur við vandaða lagasetningu og markviss þingstörf. Í stað þess að óafgreitt frumvarp, segjum viðamikil heildarendurskoðun lagabálks, sem unnið hefur verið að heilan þingvetur en ekki gefist tími til að ljúka umfjöllun um til fulls falli á tíma svo til fullfrágengið við þinglok opnast sá möguleiki að ræða það áfram án þess að þurfa að endurtaka flutning þess og meðferð alla á nýju löggjafarþingi.
Um leið og slíkt fyrirkomulag, þessi möguleiki, að mál lifi milli þinga, gefur færi á að koma í veg fyrir ákveðna sóun þarf að búa um það með vönduðum hætti í þingsköpum hvernig hann má nýta. Slíkt má að sjálfsögðu ekki verða til þess að mál séu látin dragast að óþörfu og hlaðist upp. Ferlið mætti sjá þannig fyrir sér að þingnefnd, sem hefur mál í slíkri stöðu til umfjöllunar, leggi til við þingið í heild að málið færist milli þinga en undirgangist þá skyldu, fáist það samþykkt, að ljúka vinnu við það á hinu næsta. Slík atriði má samkvæmt frumvarpinu útfæra nánar í þingsköpum. Ég hygg að þessi möguleiki, vel útfærður, geti á komandi árum létt mönnum nokkuð lífið í samningum um þinglok og þarf ekki að útskýra hvers vegna.
Ég tek að lokum fram varðandi þetta ákvæði frumvarpsins, þ.e. ákvæði 21. gr., að þar, eins og auðvitað víðar, kann að vera ástæða til að hv. nefnd skoði aðeins orðalag og mögulega nánari afmörkun. Ég er þá fyrst og fremst með í huga hvort menn vilja afmarka að einhverju leyti í stjórnarskrá þann ramma sem Alþingi hefur til að útfæra í lögum reglur um þetta eða hvort menn vilji láta Alþingi það alfarið eftir og þá væntanlega innan hvers kjörtímabils.
Hvað varðar önnur ákvæði frumvarpsins er sú sjálfsagða regla lögð til í 15. gr. að stjórnarfrumvörp skuli lögð fram í nafni ríkisstjórnar sem er í samræmi við fyrirkomulag slíkra mála í raun og ætti að vera til verulegrar einföldunar. Þá er að sjálfsögðu sú tillaga sem felst í 14. gr. frumvarpsins að felld er brott sú sérregla 24. gr. gildandi stjórnarskrár að Alþingi skuli koma saman eigi síðar en tíu vikum eftir að það var rofið. Þess í stað mun almenna reglan í 20. gr. frumvarpsins gilda að þing komi saman eigi síðar en fjórða þriðjudag frá alþingiskosningum.
Einnig er skynsamlegt að festa í sessi þá framkvæmd sem mótast hefur um það að áður en forseti Íslands tekur afstöðu til tillögu forsætisráðherra um þingrof skuli hann leita álits forseta Alþingis og formanna þingflokka sem sæti eiga á Alþingi. Með slíku er leitast við að tryggja að fyrir liggi afstaða þingsins sem heildar til þingrofstillögu forsætisráðherra og að ekki beri að verða við slíku ef vilji meiri hluta þingsins stendur til annars. Með öðrum orðum, Alþingi verður ekki rofið í óþökk eða andstöðu við vilja þess sjálfs. Þetta undirstrikar enn og aftur þingræðisregluna og er eðlilegt í lýðræðisríki með þingbundna ríkisstjórn, framkvæmdarvald sem sækir umboð sitt til lýðræðislega kjörins þjóðþings. Þetta kallast líka á við þá meginskyldu þingsins bak kosningum að mynda landinu starfhæfa ríkisstjórn eða sjá til þess hverju sinni að landið hafi ríkisstjórn. Sagan geymir mörg dæmi um það að stjórnmálunum, þingmönnum, hefur tekist að mynda nýja ríkisstjórn í stað annarrar sem hefur fallið án kosninga og þær stjórnir síðan klárað kjörtímabilið. Þingrof án þess að þingviljinn sé fyrst kannaður er þess vegna andstætt þessu hlutverki Alþingis og skyldu að sjá landinu fyrir starfhæfri ríkisstjórn. Með þessu værum við að færast örlítið nær því fyrirkomulagi, þeim anda, sem norska stjórnarskráin geymir, en þar er sem kunnugt er ekki hægt að rjúfa þing og stytta kjörtímabilið. Þar er sú skylda Stórþingsins að sjá landinu fyrir ríkisstjórn fortakslaus og gildir út allt kjörtímabilið.
Loks vil ég nefna, herra forseti, þá tillögu sem felst í 7. gr. frumvarpsins og felur í sér grundvallarbreytingu á aðkomu Alþingis að undirbúningi ákvörðunar um málshöfðun á hendur ráðherra. Ljóst er að við höfum að mörgu leyti búið við fornt skipulag sem þörf er á að endurskoða í þeim efnum. Með því að styrkja eftirlitshlutverk Alþingis, sem gert hefur verið með lögum um rannsóknarnefndir og breytingum á þingsköpum og á ýmsa fleiri vegu, verður áherslan til framtíðar á skýra lagaumgjörð um meðferð embættisbrota ráðherra. Gert er ráð fyrir að það verði ríkissaksóknari sem ákæri fyrir slík brot í stað Alþingis. Að öðru leyti er það lagt í hendur Alþingis að ákveða hvort slík mál skuli rekin fyrir sérdómstóli eða landsdómi í einhverri mynd svo og um málsmeðferðina að öðru leyti. Ljóst er að hér er um að ræða málefni sem varðar þingið miklu og því rétt að það eigi sjálft aðkomu að undirbúningi þess.
Herra forseti. Ég hef í ræðu minni eingöngu staldrað við þau atriði frumvarpsins sem snerta skipulag Alþingis og þau skil sem mörkuð eru með skýrum hætti á milli sjálfræðis Alþingis og afskipta framkvæmdarvaldsins af ákvörðunum um starfshætti þess. Fela þessi ákvæði frumvarpsins í sér grundvallarbreytingu á stöðu Alþingis sem samkomu þjóðkjörinna fulltrúa, styrkja verulega stöðu þess sem ber að fagna og ég er sannfærður um að þingmenn geta sameinast um. Ég óska stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd góðs gengis, sem væntanlega fær þetta mál til umfjöllunar, í vinnu sinni við málið og heiti nefndinni fullum stuðningi til að vinna það verk vel.