stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Forseti. Við verðum óhjákvæmilega að horfa til þess að það að svæfa mál í nefnd er ákveðið herbragð, ef maður orðar það þannig. Málþóf er annað herbragð sem er notað hér á þingi, annaðhvort til góðs eða ills, annaðhvort á mjög málefnalegan hátt, af því að verið er að troða málum í gegn á allt of miklum hraða, eða á mjög ómálefnalegan hátt, og sitt sýnist hverjum í hvert skipti. Það að svæfa mál í nefnd er að mínu mati ekki mjög málefnalegt á heildina litið þegar við skoðum það að mál eru alla jafna afgreidd í númeraröð í þingsal ellegar ákveðin forgangsmál. En nú lendum við í því að mál sem eru talin vera forgangsmál komast mjög oft ekki að í dagskrá nefnda og þegar þau gera það þá er kannski búið að klára gestakomur og þá er mjög erfitt að fá mál á dagskrá aftur eða umræðu um nefndarálit eða afgreiðslu nefndarálits sem á að seinka út af alls konar ástæðum, sem við vitum alveg að eru líka mismálefnalegar — þær geta verið málefnalegar eins og málþófið en þær geta líka verið mjög ómálefnalegar. Það sem ég sé einmitt við þessa grein er að það er orðið mun erfiðara að teygja lopann í ómálefnalegum tilgangi og svæfa mál í nefnd, sem mér finnst vera jákvætt.
Nefndir eiga að sjálfsögðu að afgreiða mál og þá bara með þeim tilmælum til þingsins að nefndin mælist til þess að málinu verði vísað til ríkisstjórnar eða bara hafnað eða hvernig sem það er. Við gerum allt of lítið af því að klára mál. Í staðinn fyrir að svæfa þau í nefnd að segja bara að nefndin leggi það til að þessu máli verði hafnað. Kannski dregur þá framsögumaður eða flutningsmaður mál til baka í staðinn fyrir að láta það fara í atkvæðagreiðslu eða eitthvað því um líkt. Ég held að við ættum að vera aðeins meira skapandi í því hvernig við afgreiðum mál úr nefnd til að þau klárist.