stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Forseti. Ég er engu nær um það hvernig hv. þingmanni finnst forsetakaflinn í þessu frumvarpi vera óskýr. Það er það sem ég var að spyrja um. Ég hef kannski mínar hugmyndir um það hvernig orðalagið í þessum tillögum er óskýrt en ég heyrði engin dæmi um það hvað væri óskýrt í frumvarpinu frá hv. þingmanni og ég kalla eftir því.
Varðandi það hvernig forseti er kjörinn, og hv. þingmaður segir að hann vilji bara hafa það eins og það er í dag, þá þekkjum við að sjálfsögðu hvaða vandamál eru við þess háttar kosningakerfi og talningakerfi, að bara sá sem fær flest atkvæði verður forseti. Það eru mjög skýr dæmi um það hvernig einn ekkert rosalega vinsæll forseti getur unnið marga aðra vinsæla sem eru mjög ofarlega á lista allra kjósenda en atkvæðin dreifast á milli þess fjölda. Ef þessi eini sem vinnur væri settur á móti hverjum og einum af hinum frambjóðendunum myndi hann tapa í öllum tilfellum og lausnin á því er einmitt forgangsröðun. Hv. þingmaður segir að ákvarðanatakan breytist, sé öðruvísi þegar það er bara val á milli tveggja en þegar það er forgangsröðun, en ákvarðanataka getur meira að segja breyst eftir kosningar. Tökum t.d. Brexit. Þegar það varð ljóst að Brexit hafði verið fellt var hlaupið upp til handa og fóta af því að það bjóst enginn við því og fólk hefði þess vegna viljað kjósa aftur. Miðað við skoðanakannanir hefði niðurstaðan þá orðið önnur, því að það voru ýmsir sem bara trúðu því ekki að málið yrði fellt og mættu þar af leiðandi ekki á kjörstað. Það er vissulega óheppilegt og þannig eru reglurnar, að þeir sem mæta kjósa og atkvæði þeirra gildir. En það sem ég er að segja er að ákvörðun kjósenda getur breyst, verið ólík á mismunandi tímum, og forgangsröðunaraðferðin er góð aðferð til að koma vilja á framfæri. Jú, eins og áður getur sú skoðun breyst eftir niðurstöðu kosninga og fólk viljað kjósa aftur og þess háttar, en ég er að reyna að koma frá mér reglunni um það hvernig (Forseti hringir.) einn frambjóðandi sem er með lítinn stuðning almennt (Forseti hringir.) í samfélaginu getur hlotið kosningu umfram alla aðra sem eru vinsælir.