stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Herra forseti. Við erum ekki að fjalla um dægurmál þegar stjórnarskráin er annars vegar. Þetta eru einhver mikilvægustu lög landsins, sjálf grunnstoðin sem safnar okkur saman, gerir okkur m.a. að þjóð. Þó að almenningur sé kannski ekki vel heima í stjórnarskránni frá orði til orðs þá er virðingin þarna, fólk skírskotar til stjórnarskrárinnar. Traust til hennar þarf að vera umtalsvert og þarf að vera óumdeilt. Stjórnarskráin er ekki einkamál Alþingis, ekki þingmanna, þótt kjörnir séu. Ég tek ekki undir með hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni, þjóðin, almenningur, á þessa stjórnarskrá. Þetta eru einstök lög. Það tækifæri sem við höfum nú til að skapa nýja stjórnarskrá með víðtækri og lýðræðislegri þátttöku er einstakt. Sú tilraun sem nú er gerð, með þeim breytingum og tillögu hæstv. forsætisráðherra sem hún leggur fram sem þingmaður, er góðra gjalda verð en hún er ekki nóg og baráttan mun halda áfram.
Herra forseti. Fjölmargar nefndir þingmanna og formanna stjórnmálaflokka hafa fjallað um endurskoðun einstakra kafla og greina stjórnarskrárinnar en heildarendurskoðun hefur ekki tekist. Langlengst í því efni komst auðvitað vinna stjórnlagaráðs 2011–2012. Ráðið skilaði Alþingi heildstæðu frumvarpi til stjórnarskipunarlaga. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins vann tillöguna áfram og lagði fram sem fullbúið nefndarfrumvarp vorið 2013. Þrátt fyrir að tveir þriðju hlutar kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu vildu leggja það frumvarp til grundvallar að nýrri stjórnarskrá tókst ekki að afgreiða málið á þingi. Alþingismenn treystu sér ekki til að styðja það mikla mál alla leið.
Núna erum við, virðulegur forseti, komin á þann stað að ræða frumvarp forsætisráðherra um breytingar á stjórnarskrá, tillögu í þá veru. Ég vil fyrst segja að margar stjórnarskrárbreytingarnar eru jákvæðar, eins og náttúruverndarákvæðið sem er mikið framfaraskref og í takt við tillögur stjórnlagaráðs í rauninni.
Síðan er auðlindaákvæðið, sem ég vil víkja aðeins að. Í frumvarpi hæstv. forsætisráðherra er tillaga að grein um auðlindir í náttúru Íslands. Það auðlindaákvæði gengur of skammt að mati okkar í Samfylkingunni og myndi festa í sessi og helga í stjórnarskrá óásættanlega úthlutun nýtingarheimilda. Þetta er allt of vítt auðlindaákvæði sem hvorki tryggir að úthlutun nýtingarheimilda sé tímabundin, eða mikil hætta á því, né að eðlilegt gjald sé ætíð greitt vegna nýtingar auðlinda í þjóðareigu. Það ákvæði um auðlindir sem þjóðin samþykkti að setja skyldi í stjórnarskrána kveður á um jafnræði til nýtingar gegn fullu gjaldi. Maður spyr sig hvort þetta auðlindaákvæði snúist meira um að halda friðinn innan ríkisstjórnarinnar en að tryggja þjóðinni gott auðlindaákvæði sem skapi bæði sátt og frið. Í rökræðukönnuninni sem gerð var í ferlinu núna var ekki spurt um auðlindaákvæði. Vísbendingar um afstöðu kjósenda má hins vegar lesa úr leiðbeinandi þjóðaratkvæði frá 2012. Í tillögum stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir gjaldtöku fyrir tímabundnar heimildir. Tveir þriðju hlutar kjósenda vildu leggja þær til grundvallar. Auðvitað á sú tillaga að vera til umræðu.
Það verður að vera hægt að tala um sjávarútvegsmál samhliða auðlindaákvæðinu. Gallað fyrirkomulag í sjávarútvegi hefur gert örfáum einstaklingum það mögulegt að taka til sín gríðarlegan auð sem þeir hafa síðan nýtt til að auka áhrif sín með öllu móti í íslensku samfélagi, með þeim afleiðingum að þeir hafa sölsað undir sig hluti í bönkum, tryggingafélögum, dagvöruverslunum, á leigumarkaði, í fjölmiðlum, jafnvel kvóta í Namibíu. Er það eðlilegt? Er það ásættanlegt þegar við, samfélagið allt, erum að bisa við að halda úti góðri þjónustu á öllum sviðum, allt frá vöggu til grafar, hvort sem það eru innviðir sem snúa að samgöngum, menntamálum eða heilbrigðisþjónustu? Svarið er nei.
Herra forseti. Örfáar fjölskyldur hafa safnað til sín auðlindum sem ganga jafnvel í erfðir líkt og um eign væri að ræða. En þetta er auðvitað ekki eign þeirra. Þetta er eign okkar allra, landsmanna allra, þjóðarinnar. Þess vegna er þetta mikilvægt og þess vegna verður að vera skýrt ákvæði um tímabindingu. Auðlindaákvæði forsætisráðherra heimilar veitingu ótímabundinna heimilda, öðruvísi verður ekki á það litið, og tryggir ekki að eigandi auðlindanna, landsmenn allir, njóti eðlilegs arðs af eign sinni með réttmætri gjaldtöku. Það verður ansi ágengt atriði nú þegar við heyrum fréttir af afkomu og hvernig útgerðin ráðstafar arði sínum. Það er ljóst að slíka grein er ekki hægt að styðja eins og hún lítur út, því það er því miður ekki líklegt til þess að skapa sátt um auðlindaákvæðið og til þess að skapa sátt um atvinnugreinina að hafa hvorki tímabindingu né að full gjaldtaka sé tryggð.
Maður spyr sig: Af hverju á það sama ekki að ganga yfir sjávarauðlindina og gengur yfir auðlindir líkt og orkuauðlindir og fleiri, sem eru ekki margar í okkar eigu? Við getum deilt um það hvort tímabindingin eigi að vera 10, 15 eða 20 ár. Það er aukaatriði í rauninni en það er lágmark að tryggja í stjórnarskrá að úthlutun nýtingarheimilda sé tímabundin líkt og kveðið er á um í tillögum stjórnlagaráðs.
Þeim sem hafa fylgst grannt með baráttunni um nýja stjórnarskrá dylst ekki að ein af meginástæðunum fyrir andstöðu við hana er að í henni eru völd sem gildandi stjórnarskrá hefur leitt til þess að voru færð stjórnmálamönnum en yrðu nú færð til almennings. Önnur af þessum meginástæðum er auðvitað auðlindaákvæðið.
Herra forseti. Núna þarf að fara vel yfir þessar tillögur í vinnslu nefndarinnar og vonandi verður hægt að ræða þær í samhengi við frumvarpið sem byggðist á tillögum stjórnlagaráðs. Það er a.m.k. ljóst að miklar breytingar verða að eiga sér stað á auðlindaákvæðinu ef við jafnaðarmenn eigum að geta stutt það. Sátt í þessu mikla deilumáli, þessu stóra höfuðmáli um aðgang að verðmætustu auðlind þjóðarinnar, getur aldrei orðið nema með því að aflétta þessum einkarétti og forgangi að aflaheimildum. Segja má, herra forseti, að í raun standi nú yfir átök milli þjóðarinnar og þingheims um völd og auðlindir. Samfylkingin berst af fullri hörku með þjóðinni í hvoru tveggja.