151. löggjafarþing — 54. fundur, 11. feb. 2021.
stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
466. mál
Herra forseti. Ég vil bara viðhafa örfá orð í þessu sambandi. Ég leyfi mér að fullyrða það að stór hluti einnar stærstu atvinnugreinar landsins er tengdur einum stjórnmálaflokki. Að öðru leyti er ég ekki að saka hv. þingmann um tengsl við þessa atvinnugrein öðrum fremur og bið hann afsökunar ef hann hefur skilið það með þeim hætti.