151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[17:52]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, það er allt til í fræðunum og það er allt til í pólitík. En við höfum alltaf haft það fyrir ákveðna reglu hér að miða okkur við önnur sambærileg ríki, lýðræðisríki, og einna helst nágranna okkar. Þegar ég stundaði lögfræði man ég ekki til þess að í nokkurri stjórnarskrá á Norðurlöndum hafi verið auðlindaákvæði af því tagi sem tillögur stjórnlagaráðs gera ráð fyrir. Ég held að ég geti fullyrt að svo sé ekki. Það kann að vera að við finnum þetta einhvers staðar í Suður-Ameríku, það er eins og mig rámi í að svipað ákvæði sé í stjórnarskrá Ekvador, það kann að vera misminni, ég ætla ekki að fullyrða um það. Það eru til, held ég, einhver svipuð ákvæði í stjórnarskrá Rúanda.

Ég geld varhuga við ákvæðum af þessu tagi í stjórnarskrá. Við erum öll sammála um það, og enginn ágreiningur um það, að ekki ætlum við að ganga á auðlindir okkar með ósjálfbærum hætti. Það er enginn ágreiningur um það og hagsmunir okkar snúa að því að hér sé sjálfbær atvinnugrein, sjálfbær nýting á auðlindum. Ég óttast hins vegar að tillaga stjórnlagaráðs um auðlindaákvæði gæti valdið því að sjávarútvegurinn yrði ekki einu sinni sjálfbær. Það er auðvitað áhyggjuefni mitt í þessu. Ég segi bara: Ég ætla ekki að vera fyrsti maðurinn sem fer þá leið að búa til eitthvert svona ákvæði um þjóðareign og nýtingu auðlinda til framtíðar. Það held ég að sé ávísun á vandamál og ég er nokkuð sannfærður um það.