151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[18:07]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ein spurning sem mér finnst ástæða til að spyrja hv. þingmann í ljósi ræðu hennar og það er hvort henni finnist það ekki skipta máli og ekki hafa neina merkingu að í stjórnarskrá sé ákvæði um að þjóðareign sé á auðlindum landsins og þær megi ekki selja eða afhenda varanlega.