151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[18:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta skiptir máli allt saman. Ég væri kannski rólegri ef stjórnarflokkarnir hefðu ekki fellt, ekki bara einu sinni á þessu kjörtímabili, ekki bara tvisvar, heldur þrisvar tillögu um að tímabinda nýtingu auðlindarinnar. Viðreisn féll frá öllum tillögum varðandi það hvernig við ætluðum að sækja auðlindagjaldið, varðandi markaðsleiðina og allt það. Það er ekki til umræðu hér. Ég frábið mér að verið sé að afvegaleiða umræðuna. Það er einfaldlega verið að segja: Almenn regla, tímabindum samninga. Aðrar þjóðir hafa þetta í almennum lögum. Það hefur hins vegar verið fellt ítrekað. Aðrar þjóðir hafa farið þessa skýru leið, hvort sem það eru Norðmenn eða aðrir sem hafa yfir ríkum náttúruauðlindum að ráða. Það eru alltaf tímabundin afnot af auðlindinni. En hér er það ekki gert. Hér hefur þetta verið margreynt.

Ég undirstrika að niðurstaða auðlindanefndar Jóhannesar Nordals frá árinu 2000 var alveg skýr, að breyta þyrfti lögum samhliða þeim tillögum sem þar lágu fyrir til að tímabinda aðganginn. Frá þessu öllu var horfið af hálfu Sjálfstæðisflokksins og Landssambands íslenskra útgerðarmanna. Ég væri rólegri ef stjórnarflokkarnir hefðu á einhverju tímabili sagt: Já, við skulum bara gera þetta í almennum lögum. En það er búið að fella það nokkrum sinnum hér á þingi á þessu kjörtímabili undir forystu Vinstri grænna. Þess vegna er ég afar óróleg. Það er bara ákveðinn fagurgali að reyna að segja að það skipti máli að setja þjóðareignina hérna inn og það skipti ekki máli að það standi ekki til varanlegrar eignar eða afhendingar. Við skulum þá bara tala skýrt og hafa þetta skýrt í lögum. Það er ekki verið að tala um það hvaða leiðir við förum í að innheimta gjaldið í þessu. Ég hef margítrekað að það verður síðan löggjafans að ákveða það. Við vitum að pólítískt erum við með mismunandi stefnu um hvernig við viljum innheimta auðlindagjaldið. Ég treysti markaðnum. Sjálfstæðisflokkurinn gerir það ekki. Það eru bara mismunandi pólitískar áherslur. Ég er bara að biðja um það núna í þessu mikilvæga skrefi að við virkjum þjóðareign í alvöru, auðlindaákvæðið. Það er ekki gert núna en við höfum enn þá tíma til þess að breyta þessu í meðförum þingsins.