stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
Hæstv. forseti. Það er ekki hægt að gera tímabundna samninga til hæstbjóðenda nema með því að innkalla þann kvóta sem nú er. Það er ekki hægt. Menn hafa aflaheimildir núna. Ef við ætlum að fara að gera nýja samninga við þann sem býður best, þessi umræða hjá Viðreisn virðist alltaf hafa snúist um markaðinn, þarf að innkalla aflaheimildir. Það verður enginn markaður til hæstbjóðenda nema innkalla með einhverjum hætti eða taka veiðiheimildir af þeim sem hafa þær í dag. Það er ekki flóknara en það. Það þarf ekkert að fara í þennan leiðangur. Við tökumst á um það hér í salnum dagsdaglega hvað er skynsamlegt að gera. Þetta var sett inn í lög um stjórn fiskveiða á sínum tíma, þetta ákvæði, sem var alveg jafn tilgangslaust og allt annað, eins og dómur Hæstaréttar segir okkur. Við stjórnum auðvitað auðlindinni á grundvelli fullveldisréttarins. Við getum ákveðið að innkalla eða breyta þessu kerfi eins og okkur sýnist ef við teljum það til hagsbóta fyrir þjóðina. Það er ekkert því til fyrirstöðu. Það þarf ekkert stjórnarskrárákvæði til þess. Það þarf ekki. Við getum ákveðið það. Við getum ákveðið að á morgun skuli vera frjálsar veiðar. Þetta snýst allt um það að þessi atvinnugrein, sem er okkar mikilvægasta atvinnugrein, sé sjálfbær, skapi verðmæti, sé samkeppnishæf sem hún hefur reynst, og sennilega eini staðurinn í heiminum þar sem svo er. Ég endurtek spurningu sem hv. þm. Birgir Ármannsson bar fram hér áðan: Hverjir aðrir eru að fara þessa leið sem Viðreisn leggur til? Hvar er þetta í öðrum stjórnarskrám? Hverjum hefur dottið þetta í hug? Ég veit það ekki en kannski getur hv. þingmaður svarað því. En mér þykir vænt um hana líka, sérstaklega meira að segja, og alla hennar fjölskyldu.