151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:00]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður talaði um stjórnarskrárbreytingar í breiðri sátt hér í upphafi ræðu sinnar. Ég velti fyrir mér hvort tveir þriðju kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu séu ekki breið sátt. Já, það voru rétt tæplega 50% sem kusu sem er svipuð kosningaþátttaka og gerist í Sviss þar sem eru ansi margar þjóðaratkvæðagreiðslur. Það er ekkert sem bendir til að niðurstaðan hafi verið eitthvað bjöguð, að hin 50% sem kusu ekki hefðu greitt einhvern veginn öðruvísi atkvæði. Við erum að tala um að aukinn meiri hluti þjóðarinnar vildi að frumvarp stjórnlagaráðs yrði lagt til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Hvernig er það annað en breið sátt um stjórnarskrárbreytingar?