151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:01]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Við höfum nú átt þetta samtal hérna áður, hv. þm. Björn Leví Gunnarsson og ég. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég undrast það að hann skuli halda þessu svo til streitu sem hann gerir, að leggja megi svo mikið upp úr þeirri atkvæðagreiðslu sem hann vísar til árið 2012. Hann nefndi sjálfur slælega þátttöku. Það er auðvitað mjög erfitt að draga af þessari atkvæðagreiðslu stórfelldar ályktanir. Hann nefndi sjálfur að orðalagið sem þarna var notað væri að frumvarp stjórnlagaráðs yrði lagt til grundvallar. Hvað merkir það? Ég hef hitt fólk sem skilur það þannig að það eigi bara að taka þetta plagg frá stjórnlagaráði og lögfesta það. Aðrir hafa sagt við mig: Ég skil það svo að þetta þýði að hafa eigi að plaggið til hliðsjónar. Miðað við þetta opna orðalag og þessa slælegu þátttöku og aðra slíka þætti get ég ekki með nokkru móti séð að einhver skýr þjóðarvilji hafi verið kallaður fram í þessari atkvæðagreiðslu 2012. Það er bara ekki nokkur leið að sjá það.