151. löggjafarþing — 54. fundur,  11. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[19:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Slæleg þátttaka, eins og ég sagði, svipað og í þjóðaratkvæðagreiðslum í Sviss þar sem eru mjög margar þjóðaratkvæðagreiðslur. Hv. þingmaður er í flokki með fyrrverandi þingmanni sem sagði að strax væri teygjanlegt hugtak. Við skulum ekki fara í hártoganir. Það er mjög auðvelt að fara í orðabók og skoða hvað „til grundvallar“ þýðir. Það þýðir ekki miklar breytingar. Ekki miklar breytingar. Það er ekkert voðalega flókið að fletta því upp. Það er augljós skilningur allra sem vilja skilja það en ekki fara í hártoganir um það.