151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

starfsemi Samherja í Namibíu.

[13:13]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Í plaggi frá hæstv. ríkisstjórn, sem var birt fyrir 454 dögum, er talað um að ráðast þurfi í endurskoðun laga um stjórn fiskveiða svo að reglur um hámarksaflahlutdeild séu skýrar. Eins og lögin hafa verið túlkuð má einn aðili ráða yfir 12% kvótans og því til viðbótar eiga 49% hlut í öllum hinum fyrirtækjunum sem ráða yfir þeim 88% sem út af standa. Ítrekað hefur verið bent á að of sterk yfirráð fárra aðila yfir fiskveiðiauðlindinni þýði meiri völd til þeirra í þjóðfélaginu en heilbrigt getur talist og staða þeirra verði of sterk gagnvart stjórnvöldum. Völd þeirra og áhrif í þjóðfélaginu geti verið skaðleg og áhrif þeirra á ákvarðanir í stjórnkerfinu og á vettvangi stjórnmála geti unnið gegn almannahag.

Hvenær er von á frumvarpi sem vinnur gegn aukinni samþjöppun, eykur gegnsæi og auðveldar Fiskistofu að sinna eftirlitsskyldum sínum? Hyggst hæstv. ráðherra taka á þessari meinsemd með lagasetningu þar sem miðað er við lögin um raunverulega eigendur, um 25% eignarhlut, en ekki meirihlutaeign eins og lögin standa núna?