151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

starfsemi Samherja í Namibíu.

[13:15]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegur forseti. Það verður tekið á því máli í samræmi við þá yfirlýsingu sem þarna var gefin og þá vinnu sem staðið hefur í mínu ráðuneyti. Ég geri ráð fyrir því að undir lok þessarar viku verði frumvarp um raunveruleg yfirráð tengdra aðila sett á samráðsgáttina. Hv. þingmaður þekkir ágætlega þá vinnu því að hún sat í starfshópi sem vann undir forystu fyrrverandi ríkisendurskoðanda að tillögugerð í þessum efnum og þekkir jafnvel betur en ég erindisbréfið sem nefndinni var ætlað að vinna eftir. Ég geri ráð fyrir því að frumvarpið fari út á samráðsgátt, eins og ég sagði, og kallað verði eftir athugasemdum í þeim efnum. Ég vil nefna það hér sem dæmi að Fiskistofa hefur kvartað undan því að ekki hafi verið gerð ein einasta tilraun síðastliðin tíu ár til að taka á því að skilgreina hvað felist í hugtökunum „raunveruleg yfirráð“ eða „tengdir aðilar“ en von er á því frumvarpi innan tíðar.