skattur af lífeyristekjum og arðgreiðslum.
Virðulegur forseti. Einstaklingur sem fer á eftirlaun og fær greiðslur úr lífeyrissjóði — hann var með 400.000 kr. mánaðarlaun, bara í venjulegri verkamannavinnu og má reikna með að fá 50% af því, 200.000 kall, úr lífeyrissjóði — þessi einstaklingur verður fyrir skerðingu, 45% skerðingu, allt að frá 60% og upp undir 80% skerðingu, þegar hann skráir sig hjá Tryggingastofnun ríkisins. Meðallaunin í viðkomandi stétt eru enn 400.000 og þar af leiðandi á hann enga möguleika á að komast upp í það sem hann hafði áður fyrir utan það að hann er kominn í fátækt.
Á sama tíma og 60–80% skerðingar og skattar ganga yfir þessa ellilífeyrisþega erum við með arðgreiðslur upp á milljarða og þar er verið að rífast um hvort verið sé að skatta milljarðana um 10% eða 20%. Er þetta eðlilegt? Finnst hæstv. fjármálaráðherra þetta eðlilegt? Finnst honum þetta eðlileg skipting? Ætti ekki að snúa þessu algjörlega við? Og bara til þess að ítreka það, vegna þess að hæstv. ráðherra snýr ítrekað út úr þegar maður er að spyrja svona, er ég einfaldlega að spyrja bara: Er sanngjarnt að þeir sem fá milljarða greiði 10–20% skatt af arðinum sínum? Ættu þeir sem eru með lögþvingaðan eignarréttarvarinn lífeyrissjóð þá ekki frekar að vera með svona 10–20% eða bara fjármagnstekjuskatt á sitt?