skipulögð glæpastarfsemi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og ég tek auðvitað undir með honum að þannig viljum við halda landinu áfram, sem öruggu landi. Og hver hafa viðbrögðin verið? Þau hafa verið mikil. Við höfum hafið mikla vinnu með ríkislögreglustjóra og undir forystu hans sett á laggirnar hóp með öllum aðilum til að tryggja samræmingu og samhæfingu og getu lögreglunnar til að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi hér á landi. Ég ítrekaði síðast í október í bréfi til allra lögreglustjóra á landinu að hafa þessi mál í forgangi, að gæta þess að það sé nægur mannafli í að sinna þessu, og hef varið miklum fjármunum í að tryggja tækjabúnað, getu og bæta fræðslu sem og þjálfun lögreglumanna til að takast á við þessa vá. Þetta hefur verið í algjörum forgangi undanfarna mánuði í dómsmálaráðuneytinu og sú vinna sem hefur verið lögð í það hefur gagnast vel að mati lögreglunnar. Það er enn þá verið að vinna ýmsar verklagsreglur, ýmsa greiningarvinnu sem ég bíð eftir frá ríkislögreglustjóra og það hefur verið algjört forgangsatriði að aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi séu settar í forgang hjá öllum lögregluembættum og nauðsynlegum mannafla varið til þess verkefnis.
Auðvitað eru atburðir helgarinnar áhyggjuefni og ég hef sagt að það sé full ástæða, og hefur verið undanfarna mánuði, til að auka viðbúnað og sérhæfingu lögreglunnar í aðgerðum sem þessum. Það er verið að vinna að því með skýrum hætti undir forystu ríkislögreglustjóra með öllum lögreglustjórum á landinu, því að til þess að takast á við þetta þarf bæði fræðsla um þessi mál að vera tryggð, viðbúnaður þarf að vera tryggður, búnaður að vera í lagi og geta lögreglunnar til að átta sig á þessari vá, eins og kemur fram í þeim skýrslum sem hv. þingmaður nefnir.