151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

skipulögð glæpastarfsemi.

[13:27]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svar hennar. Ég vil nefna að í skýrslunni 2019 kemur fram að auka verði frumkvæðisvinnu, gera frumkvæðisvinnu öfluga og auka rannsóknir. Ítrekað hefur verið bent á að fjöldi lögreglumanna í landinu hefur ekki haldist í hendur við þróun samfélagsins og ný verkefni lögreglunnar. Hvað hefur verið gert í þessum málum í öll þessi ár? Einnig er bent á að lögreglumönnum sem sinna fíkniefnarannsóknum og öðrum birtingarmyndum skipulagðrar glæpastarfsemi hafi fækkað. Þetta kemur fram í skýrslunni 2019. Kallað er eftir áherslubreytingum í löggæslu. Hefur það verið gert? Þá telja höfundar skýrslunnar að án þess séu litlar líkur á að markverður árangur náist í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi. Vitað er að umsvifamikil erlend glæpasamtök hafa búið um sig og ráða lögum og lofum í undirheimum borgarinnar, a.m.k. á ákveðnum sviðum glæpa. Fljótum við sofandi (Forseti hringir.) að feigðarósi, hæstv. ráðherra? Hvað eru menn að gera í ábendingum lögreglunnar í fjöldamörg ár? Er ekki kominn tími til að höggva að rótum þessa meins?