151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

skipulögð glæpastarfsemi.

[13:29]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Nei, við höfum ekki verið sofandi og ég held að ég hafi komið vel inn á það í fyrra svari, hv. þingmaður. Og að það sé ekki verið að fara eftir tilmælum og óskum lögreglunnar sjálfrar sem metur þessa hættu — það er einmitt verið að gera það. Það er ríkislögreglustjóri sjálfur sem leiðir þá vinnu og hefur komið með tillögu að forgangsröðun, hvernig best sé að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi, hvernig best sé að tryggja að aðgerðir og geta lögreglunnar sé nægjanleg. Það er ríkislögreglustjóri sem hefur forgangsraðað og komið með þá forgangsröðun til mín sem ráðherra. Ég hef styrkt búnaðar- og tækjakaup, styrkt hópinn með annarri vinnu, sett af stað stýrihóp og ítrekað það við alla lögreglustjóra landsins að hafa þessi mál í forgangi. Að sjálfsögðu er búið að bregðast við þeim athugasemdum sem koma fram í skýrslunni og fjármunir lögreglunnar hafa heldur betur verið auknir, úr 14 milljörðum í 18 milljarða á örfáum árum. (Forseti hringir.) Þarna þarf að forgangsraða fjármunum eins og annars staðar í ríkisrekstrinum og gera vel.