151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

spilakassar.

[13:30]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Forseti. Yfirstandandi sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda hafa snúið að því að verja heilbrigðiskerfið og heilbrigði þjóðarinnar til skemmri og lengri tíma. Við höfum farið í endurskoðun og lagabreytingar til að mynda á sóttvarnalögum vegna þess að þær samræmdust ekki nútímanum og þeim aðstæðum sem eru í dag. Settar hafa verið harðar og íþyngjandi sóttvarnaaðgerðir sem hafa verið okkur erfiðar þótt nauðsynlegar séu.

En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Í kjölfar lokunar spilasala vegna sóttvarnaráðstafana hefur herferðin Lokum.is sem betur fer opnað augu okkar og vakið athygli á því háalvarlega ástandi sem spilafíklar á Íslandi eru í. Reynslusögur spilafíkla og aðstandenda úr þessum mannskemmandi veruleika eru átakanlegar. Um er að ræða fólk sem tapar öllu, spilar jafnvel frá sér allan lífeyrinn fyrir hádegi. Meðan á lokunum stóð sáum við batamerki hjá þessum hópi þar sem fólk fór aftur að verða virkari þátttakendur í eigin lífi. En nú er búið að opna kassana aftur. Herferðin er í fullum gangi og orðræðan og vitundarvakningin um málaflokkinn eykst, en við höfum séð lítil sem engin viðbrögð frá stjórnvöldum.

Forseti. Finnst hæstv. heilbrigðisráðherra það forsvaranlegt að íslensk stjórnvöld reiði sig óbeint á eymd og vonleysi örfárra fársjúkra undir þeirri yfirskrift að lækka útgjöld ríkisins, svo sem til menntastofnana, í stað þess að verja hagsmuni og heilsu þessara sjúklinga eins og annarra einstaklinga, eins og gert hefur verið í heimsfaraldrinum? Hvað ætlar ráðherra að gera í málinu núna strax? Hverjar eru horfurnar fram undan fyrir þennan viðkvæma, útsetta hóp og fjölskyldur þeirra?