spilakassar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þetta er umræða sem er okkur öllum kunnug og mörg okkar hafa áhyggjur af þeim sem hafa ánetjast spilafíkn, enda er sú staða mjög alvarleg. Ég vil fullvissa hv. þingmann um að ég deili þeim áhyggjum og hef hitt félagasamtök sem barist hafa gegn rekstri þessara spilasala. Hins vegar er ákvörðun um það hvort spilasalir séu opnir eða lokaðir ekki hluti af mínum valdheimildum eða sóttvarnaráðstöfunum, því að ákvarðanir um sóttvarnaráðstafanir eru teknar á grundvelli sóttvarnasjónarmiða en ekki þess hvort heilbrigðisráðherra sé reksturinn hugnanlegur eður ei.
SÁÁ hefur sinnt að hluta til meðferð þeirra sem eru þjáðir af spilafíkn. Þar þarf líka að gera betur og samfélagið þarf að gera betur því. Við höfum líka rætt það sjónarmið, sem ég held að sé til umhugsunar, að það eru fleiri staðir sem fólk getur stundað eða fengið útrás fyrir spilafíkn sína en þessir salir, sem er einfaldlega á netinu. Þannig að það er ekkert í þessu svo einfalt að vandinn sé úr sögunni þó að þessum stöðum yrði lokað. En ég tek undir með hv. þingmanni að þetta þarf að ræða, en ég árétta það að heimildir til að halda úti rekstri á spilasölum eru ekki á borði heilbrigðisráðherra.