151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

spilakassar.

[13:34]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svörin. Ráðherra kemur einmitt inn á vanda málsins að miklu leyti, þ.e. að þetta tengist fleiri ráðuneytum en ráðuneyti hæstv. heilbrigðisráðherra, til að mynda dómsmálaráðuneytinu. Það er einmitt, eins og ráðherra segir, mikilvægt að eiga samtal og skoða þessi mál í samfélaginu. Það má ekki bíða. Hæstv. ráðherra kom aðeins inn á það að fólk geti fært sig yfir á netið, en staðreyndin er hins vegar sú að engar rannsóknir sýna fram á að þeir sem hafa ánetjast þessum tilteknu spilakössum færi sig yfir á netið. Ég vildi bara koma því að. Og höfum eitt á hreinu, virðulegi forseti, að um er að ræða fjárhættuspil. Forsendur núgildandi laga eru löngu brostnar. Í upphafi var um að ræða mjög sakleysislega söfnunarkassa sem hafa þróast yfir í eitruð og ávanabindandi tæki þar sem veikt fólk er ofurselt.

Mig langar að spyrja ráðherra: Hvernig ætlar hún að beita sér fyrir því að farið sé í þetta samtal, jafnvel með fleiri ráðuneytum, og eitthvað sé gert í þessum mikilvæga málaflokki þar sem líf og heill svo margra er undir?