151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

spilakassar.

[13:36]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það sem undir mig heyrir lýtur að því að styrkja geðheilbrigðisþjónustuna á öllum stigum hennar og í tíð ríkisstjórnarinnar hefur verið aukið inn í ramma geðheilbrigðisþjónustunnar sem nemur milljarði á ársgrundvelli. Það snertir öll þau sem eiga við einhvers konar geðheilbrigðisvanda og þar með talið þennan vanda. Lög um happdrætti heyra undir dómsmálaráðherra, eins og kom fram í mínu fyrra svari. Ég vil bara hvetja hv. þingmann til dáða. Það eru ýmis verkfæri sem þingmenn hafa með því að leggja til, spyrja skriflegra fyrirspurna, óundirbúinna fyrirspurna o.s.frv., að ég tali nú ekki um það að undirbúa hreinlega þingmál því að það er þingið sem er stefnumarkandi og er löggjafinn.