fyrirkomulag heilsugæslunnar.
Virðulegur forseti. Ég vil ræða við hæstv. heilbrigðisráðherra um breytt fyrirkomulag á fjármögnun heilsugæslunnar og innleiðingu þess. Slíkt var gert fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á árinu 2017. Við munum, held ég flest, hvernig umræðan var um heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu, það var mikill mönnunarvandi og skortur á heilbrigðisstarfsfólki, það voru langir biðlistar og löng bið eftir þjónustu og annað slíkt. En við heyrum mun minna, ef nokkuð, af þessu í dag. Því held ég að megi segja að í flestum þáttum hafi þetta innleiðingarferli á breyttri fjármögnun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins gengið mjög vel og heilsugæslan hefur getað farið að sinna sínu hlutverki enn betur.
Nú hefur staðið yfir vinna við að yfirfæra þetta fyrirkomulag fjármögnunar yfir á heilsugæsluna á landsbyggðinni. En þá var annað sem fylgdi þessari innleiðingu hér á höfuðborgarsvæðinu. Það var samið við sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar til að koma inn samhliða þeim heilsugæslustöðvum sem voru fyrir, til þess að fá fjölbreytt rekstrarform og aukið val fyrir notendurna, sem ég held að hafi reynst vel. Þetta hefur orðið til þess að þar sem heilsugæslan er undirmönnuð og löng bið eftir þjónustu, eins og á Suðurnesjum sem dæmi, hafa menn leitað mikið til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra hvort ekki standi til að innleiða svipað fyrirkomulag á landsbyggðinni og gera samstarfssamninga við sjálfstætt starfandi til að hraða því að ná þessum árangri, sem náðist hér, á landsbyggðinni, t.d. í Reykjanesbæ og á Akureyri.