fyrirkomulag heilsugæslunnar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Það er alveg augljóst að t.d. á Suðurnesjum hefur mönnunarvandi lengi verið til staðar þó að engin sjálfstætt starfandi heilsugæsla sé þar. Það hefur vissulega verið gert ráð fyrir uppbyggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Suðurnesjum en það tekur töluverðan tíma að byggja hana upp og manna. Núverandi heilsugæslu, sem rekin er af hinu opinbera, tekst ekki að manna. Við sjáum að hér á höfuðborgarsvæðinu tókst að manna stöðvarnar og svara eftirspurn með því að fjölga sjálfstætt starfandi. Nú hefur öll bæjarstjórn Reykjanesbæjar sammælst um að hún geti ekki beðið á meðan verið er að byggja þá heilsugæslu sem gert hefur verið ráð fyrir í fjárlögum og í fjármálaáætlun. Því held ég að fljótvirkasta lausnin til að sinna heilsugæslunni og byggja hana hratt og örugglega upp, og manna hana, sem er stór áskorun á Suðurnesjum, sé að gera samstarfssamning við sjálfstætt starfandi og hafa þá fjölbreytt rekstrarform á Suðurnesjum.