stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Hvernig gerum við samfélagið betra? Þetta er spurning sem við ættum að spyrja okkur hvern einasta dag í þessum sal. Það eru margar leiðir að því og ein af þeim tel ég vera þá leið sem er lögð til í þessu frumvarpi, að lækka kosningaaldur. Það að lækka kosningaaldur gerir samfélagið betra af ýmsum ástæðum, m.a. með því að vega upp þann lýðræðishalla sem er í þessum sal og birtist t.d. í því að eftir síðustu kosningar voru ekki nema 2,2% þingmanna á Íslandi undir þrítugu. Það endurspeglar engan veginn aldursskiptingu þjóðarinnar og setur okkur á sama stað og heiminn að meðaltali. Þingmenn undir þrítugu eru í kringum 2% á heimsvísu. Við erum hvorki betri né verri en restin af heiminum, þó að við viljum væntanlega í þessu vera fremst meðal jafningja í því að hafa ungt og ferskt þing, hugmyndaríkt og skemmtilegt. Svo gerðist það að þingheimur bætti við sig ári á hverju ári og nú stöndum við, þegar hallar að næstu kosningum, í þeim sporum að enginn þingmaður á Íslandi er undir þrítugu. Þar með erum við í hópi með þeim þriðjungi þjóðþinga um veröld alla þar sem enginn þingmaður er undir þrítugu. Þetta er vandi sem, ef fram heldur sem horfir varðandi þróun á aldurssamsetningu þjóðarinnar, gæti haldið áfram að ágerast frekar en að lagast, sé ekki gripið í taumana. Það er nefnilega þannig að ef við skoðum bara mannfjöldaspá Hagstofunnar eru í dag 16% þjóðarinnar á þrítugsaldri en eftir 50 ár verða 11% þjóðarinnar á þeim aldri.
Af hverju skiptir þetta máli? Þetta skiptir máli vegna þess að þingmenn eru ekki nógu duglegir að hlusta. Ef ég kynni einhverja töfralausn á því að láta þingmönnum ganga betur að hlusta á ólík sjónarmið í samfélaginu þá hefði ég lagt fram frumvarp þess efnis. En þar sem sú töfralausn er ekki til þá liggur hér fyrir frumvarp um að bæta tveimur árgöngum fólks undir lögræðisaldri í hóp kjósenda. Með því móti er ekki bara ákjósanlegt fyrir stjórnmálafólk að hlusta á yngri kjósendur eða yngra fólk heldur hefur hópur fólks sem nýtur verndar barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna grjóthart verkfæri til að láta okkur finna til þess ef við hlustum ekki. Það getur einfaldlega beint atkvæði sínu annað.
Þetta held ég að myndi t.d. gagnast stúdentum sem undanfarna mánuði hafa fengið að upplifa það að margítrekað og kristaltært ákall þeirra um trygga framfærslu hefur ekki náð eyrum meiri hluta þings. Stúdentar töluðu um nauðsyn þess að hækka grunnframfærslu námslána þegar ný lög um námslán voru samþykkt í vor. Grunnframfærslan hefur ekki hækkað neitt síðan. Stúdentar töluðu um mikilvægi þess að stúdentar í hlutastarfi, sem missi starfið vegna Covid-faraldursins, gætu sótt um atvinnuleysisbætur í vor. Það geta þeir ekki vegna þess að á þetta hefur enn ekki verið hlustað. Þó er þetta fólk með kosningarrétt, svo ég bakki aftur frá þeim rökum, en þetta sýnir svo vel hvernig ákall heillar kynslóðar getur verið lagt til hliðar þegar mest á reynir.
Svo ég nefni annað dæmi þá fögnum við því náttúrlega öll, eða flest vona ég, að á morgun stendur til að greiða atkvæði um frumvarp um kynferðislega friðhelgi, um vernd fólks gegn stafrænu kynferðisofbeldi. Þetta er vandi sem komst í kastljósið með þrotlausri baráttu ungra stúlkna, aðallega, fyrir sex árum. Fyrir sex árum, forseti. Það tók allan tímann frá mars 2015 og til febrúar 2021 fyrir #freethenipple að ná loksins endapunkti hér í þingsal. Skyldi það vera vegna þess að raddirnar sem hrópuðu voru 15, 16 og 17 ára? Ég held að það hafi spilað inn í.
En fyrst við erum að tala um dæmi um ákall ungs fólks þá er það akkúrat grundvallarröksemdarfærslan fyrir því hvers vegna það getur verið gagnlegt að lækka kosningaaldur, hvernig það gerir samfélagið betra, vegna þess að ungt fólk sýnir aftur og aftur með afgerandi hætti hvernig það geti verið drifkraftur breytinga á samfélaginu á skala sem við sem eldri erum munum aldrei jafna. Ég nefndi hér #freethenipple. Það mætti líka nefna ákall ungs fólks fyrir bættu geðheilbrigðiskerfi. Ég held að því megi þakka þann árangur sem náðist á síðasta ári þegar var samþykkt að fella sálfræðiþjónustu undir regnhlíf sjúkratrygginga. En ekki gekk betur að hlusta en svo að það gleymdist að fjármagna það. Það má líka þakka ungu fólki og baráttu þess hversu gríðarlegur meðbyr hefur verið í umræðu um loftslagsmál á síðustu árum og bara stökkbreyting á þeirri umræðu þegar ný kynslóð kom og fór að segja hinum eldri til syndanna fyrir aðgerðaleysi, sem þessi unga kynslóð hefur beina hagsmuni af því að verði látið af.
Það er nefnilega þannig, forseti, að þó að ungt fólk myndi allt mæta á kjörstað með sjálfselskar ástæður, myndi bara greiða atkvæði út frá sínu þrönga sjónarmiði, þá væri það bara betra vegna þess að þröngt sjónarmið 16 ára einstaklings í dag er langtímasjónarmið, er sjónarmið manneskju sem mun að öllum líkindum vera hluti af þessu samfélagi undir lok 21. aldarinnar. Það að við byggjum upp til lengri tíma réttlátt og sjálfbært samfélag eru þeirra hagsmunir, meira að segja sjálfselskir eiginhagsmunir, en gerir líka samfélagið betra.
Svo er ekki úr vegi að nefna hópinn sem mætti á fund allsherjar- og menntamálanefndar í morgun, tíundu bekkinga úr Víðistaðaskóla sem stofnuðu hópinn Menntakerfið okkar og lögðu fram kröfugerð til stjórnvalda um það hvernig megi bæta menntakerfið til að ala þau sjálf betur upp í því að takast á við heiminn eins og hann er, með því að styrkja ýmiss konar raunfærni. Að smíði kenni okkur ekki bara að gera hluti sem við gerum aldrei heldur líka að festa ljósakúpul og hvað það er, að kynfræðsla búi fólk undir að vera ábyrgar kynverur, að fjármálalæsi sé hluti af því sem lagt sé inn í grunnskólakerfinu, og kannski umfram allt að þróun menntakerfisins sé ekki bara ákveðin upp í ráðuneytum eða í þingsal heldur í virku samtali við notendurna sjálfa, nemendurna.
Við erum búin að samþykkja barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og við eigum að vera með þessi mál í miklu betra lagi. Þá eigum við auðvitað að ástunda samráð við ungt fólk þegar við fjöllum um mál sem snerta hagsmuni þess sérstaklega. En það er bara alls ekki raunin. Hins vegar er það þannig að þau lönd sem tóku fyrst það skref að lækka kosningaaldur eru lönd þar sem samráð við ungt fólk er miklum mun þroskaðra en hér á landi.
Lækkun kosningaaldurs átti sér fyrst stað í Austurríki árið 2007 en mig langar að víkja nokkrum orðum að Skotlandi vegna þess að Skotland er dálítið gott dæmi og eitthvað sem við mættum taka okkur til fyrirmyndar að ýmsu leyti. Um aldamótin fékk Skotland aukna sjálfstjórn innan Bretlands og hluti af því var að koma á fót þingi í Skotlandi til að stýra ákveðnum málum innan þess lands. Degi áður en það þing tók til starfa árið 1999 hóf ungmennaþing Skotlands störf vegna þess að Skotar sögðu: Við erum með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Við erum að fá okkar eigið þing. Er ekki eðlilegt að börnin fái líka þing? Þá var það bara gert. Það þing er kosið með lýðræðislegum hætti þannig að það sækir umboð til barna. Börn eru kosin sem fulltrúar sinna kjördæma þannig að það endurspeglar að ýmsu leyti Skotlandsþing sjálft. Það fundar reglulega, að meðaltali þrisvar á ári, og skilar álitsgerðum og ýtir á Skotlandsþing, ýtir á fullorðna fólkið. Það sem mestu skiptir er að því er stýrt og það er skipulagt af ungmennum. Það er á forsendum ungs fólks sem ungt fólk hefur áhrif. Vegna þessa þótti skoska þinginu sjálfsagt og eðlilegt þegar kom til þess að greiða þjóðaratkvæði um sjálfstæði Skotlands árið 2014 að ekki yrði miðað við 18 ára kosningaaldur, eins og tíðkast hafði, heldur 16 ára. Það er kannski eðlilegt vegna þess að mögulegt sjálfstæði lands er þvílík langtímaákvörðun að eðlilegt er að tengja hana fólkinu sem þarf hvað lengst að lifa við hana. Niðurstaðan var sú að þetta tókst svo vel að skoska þingið ákvað að útvíkka þetta og er búið að lækka kosningaaldur á öllum þeim stjórnsýslustigum sem Skotland ræður sjálft. Það eina sem enn hangir í 18 árum eru kosningar til breska þingsins í London vegna þess að þar er við fleiri öfl að eiga. Jákvæð reynsla Skotlands hefur haft áhrif á Wales sem núna í maí næstkomandi mun í fyrsta sinn kjósa til þings með nýjum lækkuðum 16 ára kosningaaldri.
Þetta mál sem við höfum fyrir framan okkur hefur komið inn í þingsal nokkrum sinnum áður. Eins og ég nefndi fyrr í ræðu minni þá var það árið 2007 sem varaþingmaðurinn Hlynur Hallsson lagði fram þingsályktunartillögu þess efnis að ríkisstjórnin undirbyggi lækkun kosningaaldurs. Síðan þá eru málin orðin að mér sýnist ellefu, hafa ekki alltaf náð í ræðustól en á 148. þingi náði málið nokkuð langt. Í mars 2018 ræddum við lækkun kosningaaldurs í sveitarstjórnum eingöngu vegna þess að þar þarf aðeins að breyta einföldum lögum, en ekki í stjórnarskrá eins og hér er lagt til, og þá náðum við þeim merka áfanga að greiða atkvæði um málið. Það hefur nefnilega gerst einu sinni, herra forseti, að Alþingi Íslendinga hefur sýnt afstöðu sína í þessu máli þótt ekki hafi okkur tekist að klára það hér á vordögum 2018. Afstaðan var býsna skýr. 43 þingmenn greiddu atkvæði með lækkun kosningaaldurs. 29 þingmenn studdu gildistökuákvæði þess frumvarps. Munurinn þarna á milli vildi væntanlega að lækkunin tæki gildi en bara einhvern tímann seinna. 43 þingmenn af 63 er býsna góður meiri hluti. Þetta er sú eina afstaða sem við höfum séð í þessum sal og vonandi að hún muni haldast við umfjöllun þess frumvarps sem við ræðum hér í dag.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra, herra forseti, fyrir utan að nefna tvö eða þrjú atriði sérstaklega. Í fyrsta lagi er þetta mál lagt fram eftir ítrekað ákall ungmennanna sjálfra. Þetta er ekki gripið úr lausu lofti heldur er þetta krafa sem hefur verið reist af ýmsum samtökum ungs fólks á borð við Landssamtök ungmennafélaga og hin ýmsu ungmennaráð sveitarfélaga eða ýmissa stofnana og félagasamtaka. Það er ekki þar með sagt að allt ungt fólk sé að biðja um þetta af því að í þeim hópi eru skoðanir skiptar eins og í öllum öðrum aldurshópum, en hugmyndin kemur þaðan og þrýstingurinn kemur þaðan. Við sem tölum fyrir málinu hér í þingsal erum einungis að bregðast við því ákalli.
Þá langar mig að nefna það að kosningar eru lærð hegðun. Það að vera virkur og öflugur kjósandi er eitthvað sem slípast í okkur. Þess vegna skiptir máli að takist vel til, ekki bara þó að við lækkum kosningaaldur, heldur líka almennt þegar við tökum við nýjum kjósendum. Þess vegna þarf að bæta lýðræðisfræðslu í menntakerfinu og þess vegna þurfa flokkarnir að vera duglegri að beina orðum sínum að ungu fólki og tala við það og sýna því að á það hafi verið hlustað. Ef fólk eftir kosningar upplifir að flokkarnir gangi þvert gegn því sem þeir segja fyrir kosningar þá fer að grafa undan traustinu sem við þurfum að hafa. Hins vegar með því að treysta ungu fólki til að mæta á kjörstað og sýna okkur hvað það vill þá byggjum við upp traust vegna þess að traust býr til traust.
Við sem sitjum í þessum sal, eins og við öll á Íslandi, höfum skuldbundið okkur í gegnum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að hlusta á ungt fólk og að láta skoðun þess hafa áhrif á ákvarðanatöku okkar. Varðandi formlega aðkomu barna að ákvarðanatöku samkvæmt barnasáttmálanum eru engin neðri mörk á aldrinum þar. Hins vegar er það þannig að eftir því sem fólk verður eldra þeim mun ríkari er krafan og þeim mun formlegri á þátttakan að vera. Þess vegna tel ég að með því að samþykkja lækkun kosningaaldurs, með því að klára það frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem liggur hér fyrir þinginu, með því að færa 16 og 17 ára ungmennum formleg völd til að sýna skoðun sína með formlegum hætti gagnvart stjórnmálafólki, þá værum við loksins farin að uppfylla þessa hlið barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með einhverjum sóma.