málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Sá kostnaður sem nú þegar er greiddur af ríkissjóði er endurgreiddur kostnaður til sveitarfélaga vegna fjárhagsaðstoðar vegna flóttamanna. Það hefur verið við lýði og er í 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga frá árinu 1991 þannig á hverju einasta ári styður hið opinbera við þennan málaflokk með þeim hætti. Hér á Alþingi Íslendinga hefur verið full samstaða um það að við viljum aðstoða þá einstaklinga sem fá hér stöðu, fá hér vernd — við erum ekki að tala um þá sem eru ekki búnir að fá stöðu og ekki búnir að fá vernd, við erum að tala um einstaklinga sem eru búnir að fá stöðu í samfélaginu — við að aðlagast íslensku samfélagi. Við viljum aðstoða þá við að læra íslensku. Við viljum aðstoða þá við að koma undir sig fótunum. En það virðist vera að verða breyting á því í málflutningi eins stjórnmálaflokks á Alþingi og sá flokkur heitir Miðflokkurinn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)