151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[16:42]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér dugar ekki mínúta til að fara yfir allt sem er þess virði að ræða nánar í ræðu hv. þingmanns. En ég fer kannski yfir það í ræðu á eftir hvað ég hef við hana að athuga. Nú talaði hv. þingmaður um kvótaflóttamenn og kvótaflóttamannakerfið, Sameinuðu þjóðirnar og þess háttar, og virtist vera á þeirri skoðun að það væri nú skárra að hafa skipulag á fólksflutningum, þegar fólk vantar stað til að vera í friði á, og hafa öryggi í því sem ekki endilega fæst á götunni.

Ég velti fyrir mér hvort það væri þá orðið þannig að hv. þingmenn Miðflokksins væru farnir að styðja samþykkt Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga, á ensku kallað Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration, sem við höfum kallað Marrakesh-samþykktina, en hv. þingmenn Miðflokksins voru einmitt mikið á móti henni. Hún snýr að því að reyna að gera fólksflutninga öruggari og skipulagðari til að komast fram hjá öllum þeim vandamálum sem fylgja óskipulagi og svaðilförum að óþörfu. Hefur orðið stefnubreyting hjá hv. þingmönnum Miðflokksins hvað varðar þá samþykkt?